26.11.1945
Neðri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (4675)

101. mál, lax- og silungsveiði

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Ég verð að segja það, að ég undrast engan veginn, þótt slíkar till. sem þessi komi fram, en það er ekki vegna þess, að ég telji þær miða í rétta átt. Þegar laxveiðilögin voru sett, var það einkum stytting veiðitímans, sem hafði þýðingu, jafnframt því, sem lagnir voru takmarkaðar og ýmsar fleiri hömlur settar. En þá sást yfir þá miklu nauðsyn að vernda bergvatnsárnar. — Hv. 1. þm. Árn. gat þess, að netaveiði hefði að mestu lagzt niður, en þó mun hún enn þá viðgangast í bergvatnsánum og þá einkum á haustin. Að þetta skuli vera liðið, er óhæfa.

Ég er viss um, að laxveiðimálin komast ekki í gott horf fyrr en búið er að flokka árnar, og banna netaveiði sem víðast. Ef laxveiðilögin hefðu náð tilgangi sínum, ætti árangur að vera kominn í ljós, en svo virðist ekki, t. d. brást veiði nú í sumar. Ég skal þó ekki halda því fram, að veiði gæti ekki brugðizt, þó að allt væri í lagi, en einhver árangur ætti að sjást.

Meðan þetta er svo um bergvatnsárnar, er eðlilegt, að ásókn sé af þeim, sem við sjóinn búa, en ég er ekki í vafa um, að það væri heppilegast fyrir alla, að friðunin væri aukin. Þó er ég ekki að halda því fram, að banna þurfi alla netaveiði. En þetta þarf ýtarlegrar athugunar, og kvaddi ég mér aðallega hljóðs til að stinga þessu að hv. landbn., sem ég geri ráð fyrir, að fái þetta frv. til meðferðar að umr. lokinni.