06.12.1945
Neðri deild: 50. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í C-deild Alþingistíðinda. (4684)

132. mál, tollskrá o.fl.

Flm. (Pétur Ottesen) :

Eins og um getur í grg. þessa frv., hefur Alþ. borizt bréf frá eigendum hraðfrystihúsanna, þess efnis, að felldur verði niður tollur af umbúðum, sem notaðar eru utan um hraðfrystan fisk. Nær þetta til vissra tegunda af pappír, sem notaður er til umbúða, og auk þess ætti það við pappa og pappaöskjur, sem notaðar eru í þessum tilgangi. Sú verðlækkun, sem hér verður um að ræða, er um 30% auk vörumagnstolls af þessum umbúðum.

Þegar þessi ákvæði voru sett í tollskrána, mætti það allmikilli andstöðu hér á Alþ., og var ég meðal annarra á móti því. Hraðfrystingin er tiltölulega ný verkunaraðferð hér á landi, og við Íslendingar eigum í harðri samkeppni um markaði fyrir þessa vöru okkar. Það virðist því misráðið, að auk margra örðugleika, sem við eigum við að stríða með þessa vöru, eins og oft er, þegar um nýjar leiðir er að ræða, bæði um verkun og þá um leið nýja markaði, séu þeir, sem reka hraðfrystihúsin, látnir borga toll af þeim vörum, sem þeim eru nauðsynlegar til þess að gera þessa vöru söluhæfa. Það eru nógir erfiðleikar, þó að þessum sé rutt úr vegi. — Ég ætla svo ekki að fjölyrða meir um þetta, en óska, að fjhn. athugi málið og greiði götu þess.