14.12.1945
Neðri deild: 53. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í C-deild Alþingistíðinda. (4713)
140. mál, nýbyggingarráð
Eysteinn Jónsson:
Hv. þm. Vestm. sagði, að það hefði verið ráðgert í fyrra í sambandi við stofnun nýbyggingarráðs, að skyldulán gætu komið til mála, en þau gætu ekki orðið öðruvísi en aðeins sem skylduhluttaka í fyrirtækjum. Það getur verið, að það hafi verið átt við hugsanleg skyldulán, en ég verð að segja fyrir mitt leyti, að ég hef aldrei skilið, hvernig menn ætluðu að framkvæma skylduhluttöku í fyrirtækjum, og ég held það sé meira að segja orð, sem menn setja óhugsað niður, frekar en að menn hafi hugsað það. Varðandi skyldulán almennings, þá er það þekkt fyrirbrigði. Það er fullkomið neyðarúrræði að skylda menn til þess að lána fé, en það er þó náttúrlega frá almennu fjárhagslegu sjónarmiði skárra en að skylda þjóðbankann til að lána mikið af föstum löngum lánum til ríkisins og einstaklinga. Skyldulán, sem einstaklingar veita, valda hækkun á verðbólgunni og ofþenslu fyrst og fremst fyrir einstaklinga, en gallinn á hinni leiðinni er sá, að þar fer í rauninni engin fjárfesting fram, og getur það orðið til þess, að þjóðbankinn þurfi að losa sig undan þessum lausafjárkröfum með stóraukinni seðlaútgáfu.
Ég vildi svo að lokum aðeins segja það, út af þessu með stj., að ég veit það nú, að það stendur yfir fundur í utanrmn. Það er ekki nóg með það, að stj. hafi t. d. í gær verið hér í hliðarherbergjum meðan umr. stóðu yfir, í stað þess að taka þátt í þeim, heldur boðar hún nú í dag utanríkismálanefndarfund kl. 2. og þar situr stj. og 9 þm. Ég vil nú skora á hæstv. forseta að láta ekki bjóða þinginu þetta, — þetta er alveg fyrir neðan allar hellur, að bjóða mönnum að taka þátt í umr. um málið, þegar þannig er ástatt.