01.03.1946
Neðri deild: 78. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (4739)

177. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Frsm. (Jón Pálmason) :

Herra forseti. Þetta er alveg óþörf brýning hjá hv. 2. þm. N.-M. varðandi þetta frv. og tilefnislaus, því að það er ekki að neinu leyti landbn. að kenna, að þetta frv. kemur ekki til umr. fyrr en nú. Hún tók við því strax og það barst henni og flutti það hér inn í þingið. Þetta er því ekki n. sök, og það veit hv 2. þm. N.-M. og aðrir hv. þm., að það var ástæðulaust fyrir landbn. að afgreiða frv. um breyt. á ræktunarsjóðsl., vitandi það, að í undirbúningi var miklu stórfelldari breyt. á þessum 1. frá hálfu þeirra manna, sem með það hafa haft að gera um langan tíma, og þess vegna eru hans kvartanir í þessu sambandi ekki á rökum byggðar. En það er sjálfsagt, nú þegar n. fær þetta frv til athugunar, að vinna að því og taka ákvörðun um, hvað hún leggur til.