13.11.1945
Neðri deild: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (474)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Sigurður Guðnason:
Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið, en vil þó ekki láta hjá líða að svara hv. þm. Mýr. nokkrum orðum út af afskiptum mínum af búnaðarmálasjóði. Meginmunurinn á minni stefnu og hans er sá, að ég segi, að þeir hefðu átt að samþ. búnaðarmálasjóðinn sjálfir og nota hann síðan sem vald í stéttarfélaginu, sem þeir væru frjálsir að fara með. Síðasta ræða þessa hv. þm. var glöggt dæmi þess, hvernig þetta mál er og hvernig félagsmálum bænda er nú komið. Þessi ræða hefði verið prýðileg á stéttarþingi, en hún á ekki við á Alþingi. Ég get sagt honum, að eftir 40 ára starf hefur verkalýðurinn ekki náð forgöngurétti á nærri því öllum þeim stöðum, þar sem hann vinnur. Nú ætla þessir menn, sem eru nú að stofna sitt stéttarfélag, að byrja á að koma inn í þingið og fá sitt stéttarfélag löggilt þar. Þetta er stefna, sem ég er á móti. Ég er alveg með því, að bændur stofni stéttarfélag á frjálsum grundvelli, byggi það upp sem vald, en þeir eiga ekki að byrja á að byggja það upp á Alþingi, heldur verða þeir að byggja það upp sem sitt eigið mál. Þetta er meginmunurinn á þessum tveimur stefnum í félagsmálum.
Um verðlagsmálin mætti margt segja, en ég ætla að láta mér nægja að minnast á eitt atriði. Hann segir, að meira en helmingur af framleiðsluverði bænda fari í kostnað við verzlun o. þ. h. Nú er meginhlutinn af þessum verzlunum einmitt verzlunarfélög, sem þeir hafa sjálfir yfir að ráða, og það er því varla hægt að álíta, að kostnaðurinn hafi verið meiri en þörf er á, eða að þessar verzlanir hljóta þá að gefa mjög mikinn ágóða.
Svo er enn eitt, sem hann kom að, en það var innflutningur fólks. Bændur hafa flutt inn fólk, þeir hafa fengið Færeyinga. Það getur verið, að innflutt fólk sé ódýrara, en það yrði ekki ódýrara fyrir hina, sem þyrftu að kaupa vörur af bændum. Við höfum ekki farið fram á innflutning á kjöti enn, af því að við álítum heppilegra að kaupa innlenda kjötið, meðan það fæst í landinu.
Höfuðatriðið er þetta: Þeir eiga að byggja upp sjálfir sitt stéttarfélag. Þeir geta ekki búizt við, að það verði lögfest samstundis á Alþingi og að það fái þegar öll mál í sínar hendur, fyrst þeim er fyrst nú að detta í hug, að þeir þurfi á sínu stéttarfélagi að halda.