12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (4787)
200. mál, tollskrá o.fl.
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Þetta mál hefur verið til athugunar hjá fjhn. d., en vegna þess að eigi hafði unnizt tími til að taka það fyrir á fundi nýlega, en hins vegar málið tekið á dagskrá í d., þá sé ég mér ekki annað fært en bera fram till. um breyt., sem ég vildi fá á frv. Liggja þær fyrir á þskj. 758. Þessar brtt. bar ég fram með vitund hv. form. fjhn., sem hafði ekkert við þá málsmeðferð að athuga, að ég flytti þessar till., þar sem n. hafði ekki unnizt tími til að ganga frá sameiginlegum till. um málið.
1. brtt. mín er við 6. lið 1. gr. frv. og er um innflutningsgjald á hjólbörðum og slöngum á bifreiðar. Legg ég til, að hjólbarðar og slöngur á bifreiðar og bifhjól, dráttarvélar og veghefla verði tollfrjáls.
Næst er. brtt. 2. a., og er um lækkun á tolli á gólfmottum og kátsjúksetum í 39. kafla tollskrárinnar, að hann fari úr 30% í 10%, toll. Það er þannig um þá vöru, sem hér er um að ræða, að hún er allmikið notuð og þykir mjög hentug í sæti á bifreiðar og til annarra nota. Eftirspurn er mikil eftir þessu, og þykir því ástæða til að lækka nokkuð verðtoll á þessari vöru.
Næst koma nokkrar brtt. frá mér um tolllækkun á timbri, það er b-liður í 2: tölul. og a-, b- og c-liður í 3. tölul. Þessar brtt. allar eru um lækkun á verðtolli á algengasta timbri úr 8% í 2%. Hins vegar er gert ráð fyrir, að vörumagnstollurinn, sem er 10 aurar á teningsfet, haldist óbreyttur. Þarna er og till. um lækkun á nokkrum dýrari viðartegundum úr 15% í 8%. — Þá er d-liður 3. tölul. brtt. um lækkun tolla af tilbúnum húsum. Tollur af þessum húsum mun nú vera 7 aurar á hvert kg., sem mun vera á aðra krónu af teningsfeti, og er það meira en tollur á óunnu timbri. Tel ég ekki ástæðu til að hafa húsatollinn svo háan og legg til, að hann verði lækkaður úr 7 aurum í 1 eyri pr. kg. Einnig legg ég til, að verðtollurinn verði lækkaður niður í 2 af hundraði. Það gæti bætt nokkuð úr húsnæðisvandræðum, ef hægt væri að flytja inn tilbúin hús, en hinir háu tollar hafa aukið mjög á erfiðleika í þeim efnum. — Þá er till. um að lækka verðtoll á hurðum og gluggum úr 30% í 8%, en vörumagnstollurinn haldist óbreyttur. — Næsta till. er um að lækka toll á húsgrindum og tilbúnum húsgögnum. Tollur af húsgögnum er nú 50%, og legg ég til, að hann verði lækkaður í 30%. Ég hef ekki séð mér fært að ganga lengra, enda munar það allmiklu, hvort greiddur er 30% eða 50% tollur. Húsgagnasmiðir hafa verulega tollvernd, þó að þessi till. verði samþ. — Þá hef ég lagt til, að verðtollur af húsgagnagrindum verði lækkaður úr 30% í 15%. Þá er brtt. um lækkun tolla af búsáhöldum niður í 10%. — Þá legg ég til í 4. og 5. lið, sem er varðandi 8. og 9. tölul. frv., að þeir falli niður. Í 6. brtt., sem er við 11. tölul., legg ég til, að orðið „sívöl“ falli niður. Ég sé ekki ástæðu til að rekja sérstaklega næstu brtt., en f-liður í 7. brtt., við nr. 3 í 66. kafla, er um aluminíumplötur. Það er svo með þessa vöru, að hún er talin hentug til húsagerðar og notuð í þök í staðinn fyrir bárujárn. Mér finnst því ekki ástæða til að hafa á henni hærri toll en á bárujárni og legg til, að vörumagnstollurinn falli niður, en verðtollurinn verði sá sami og á bárujárni. — Síðasta brtt. við 1. gr. frv. er um að fella niður toll af dráttarvélum. Eins og kunnugt er, er mikið flutt inn af þeim, og eru þetta mjög nauðsynleg verkfæri.
1. málsgr. 2. gr. frv. er um að niður falli að skylt sé að endurgreiða toll af ákveðnum vörum. Þetta vil ég ekki fallast á og legg til, að skylt verði að endurgreiða toll af efni í umbúðir og umbúðum um innlenda framleiðslu, sem flutt er til útlanda til sölu þar. Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á prentvillu neðst á bls. 2 á þskj. 758. Þar stendur „og umbúðir“, en á að vera: umbúðum. — Ég skal geta þess, að þessi brtt. mín er um sama efni og frv., sem hv. þm. Borgf. flutti á þskj. 272 og var lagt fyrir fjhn., en hefur ekki verið afgr. Ég tel eðlilegt að endurgreiða toll af þessum umræddu umbúðum, vegna þess við hvað mikla erfiðleika útflutningsframleiðslan hefur að stríða. — Önnur brtt við 2. gr. frv. er afleiðing af þeirri fyrstu, að 2. tölul. falli niður. Þá legg ég til, að á undan 3. tölul. frv. komi tveir nýir liðir :
a. Í stað „áburðarsala ríkisins“ í c-lið greinarinnar komi: Búnaðarfélag Íslands.
b. d-liður orðist svo: Meðan heimilt er að hækka gjald af innlendum tollvörutegundum sbr. núg. l. nr. 99 12. des. 1945, að hækka tilsvarandi aðflutningsgjöld af sömu vörutegundum aðfluttum.
Síðan legg ég til, að aðrir undirliðir í 2. gr. falli niður, en við 3. gr. tollskrárinnar bætist nýr liður um kynbótadýr. — Það hefur borizt beiðni um þetta í bréfi frá loðdýraræktarfélagi Íslands. Þau kynbótadýr, sem flutt eru inn, eru í háu verði, enda háir tollar. Legg ég til, að þeir verði felldir niður, þar sem ekki er um það mikinn innflutning að ræða, að það muni ríkissjóð neitt verulega.
Það hefði verið ástæða til að bera fram víðtækari brtt. um tollalækkanir, því að þeir eru alltof háir í fleiri tilfellum en hér hefur verið minnzt á. T. d. eru sérstaklega háir tollar á vefnaðarvörum og fatnaði, en ég hef ekki séð mér fært að flytja till. um meiri tollalækkanir en ég hef nú gert á þskj. 758. Það er vegna þess að hagur ríkissjóðs er ekki þannig, að hann megi við mikilli tekjulækkun. Hvað snertir toll á timbri, er það að segja, að nú er verið að reyna að fá timbur frá Ameríku, þar sem ekki hefur tekizt að fá nægilega mikið frá Norðurlöndum. Þetta hefur í för með sér ógurlegan flutningskostnað, eða sennilega meiri upphæð en nokkurn tíma kaupverðið. Timbrið verður því tilfinnanlega dýrt, einkum ef borga þarf 8% verðtoll. Það er nú á döfinni frv. um aðstoð við byggingar í kaupstöðum og kauptúnum með verulegu framlagi frá hinu opinbera. Mér finnst alveg eins koma til mála að láta stuðninginn í té með tollaeftirgjöf eða tollalækkun á efni til bygginga. — Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta.