12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (4790)
200. mál, tollskrá o.fl.
Skúli Guðmundsson:
Það er fyrst út af því, sem hv. 3. þm. Reykv. var að tala um. Ég held, að þótt brtt. frá hv. 2. þm. Eyf. yrði samþ. Þá næðist ekki það, sem sá hv. þm. talaði um við 2. umr. Sú leiðrétting, sem hann vill fá, næst ekki nema með minni brtt.
Hv. 2. þm. Rang. virtist vera óánægður. Hann sagði, að mér hefði verið falið málið til athugunar, eins og rétt er, og ég ætti að leggja það fyrir nefnd. Ég skýrði frá mínum athugunum á fundi í nefndinni, en þá var ekki hægt að halda fundinum áfram. Síðan hef ég vikið að því við form. nefndarinnar að halda fund um málið, en. það hefur atvikazt þannig, að fundur hefur ekki verið kallaður saman. Hins vegar var það svo, að í fyrradag var málið í deildinni, en þá var form. ekki viðstaddur, og óskaði ég eftir, að málið yrði tekið af dagskrá, og gerði forseti það. Ég vænti þess, að kallaður yrði saman fundur í n. þann dag. En er leið að kvöldi, sá ég, að nú yrði tæplega lengur frestað að koma fram með brtt. Áður en ég afhenti þær í skrifstofuna, átti ég tal við hv. 3. þm. Reykv., og sagði hann, að ég yrði að leggja fram brtt. frá mér sjálfum og hann hafði ekkert við það að athuga, auk þess átti ég um þetta tal við hv. 2. þm. Eyf. Ég tel, að ég hafi ekki farið öðruvísi að en eðlilegt var, því að ég vildi ekki tefja málið.
Þá var hv. 2. þm. Rang. að tala um, að ég hafi átt sæti í fjvn. og hefði unnið að afgreiðslu fjárlaga og ég hefði verið sammála öðrum nm. um, að tolltekjurnar væru þannig áætlaðar, að ekki væri ráðlegt að ætla, að þær yrðu hærri. Það er rétt, að ég var með í tekjuáætluninni. En tolltekjurnar urðu 61 millj. krónur árið sem leið, en það var ekki upplýst þá, því að áætlaðar tolltekjur voru 41 millj. kr. Ég vil spyrja hv. 2. þm. Rang., hvenær hann búist við, að hægt verði að lækka tollana. Ég trúi því ekki, að það verði hægt nokkurn tíma, ef það verður ekki gert nú.
Ég tel, að ríkisstjórnin gæti aflað tekna á annan hátt en að leggja nýja háa skatta á neyzluvörur, t. d. með því að heimta inn vangoldna skatta, sem greiðast eiga í ríkissjóð.
Varðandi meðferð málsins er það að segja, að almennt er talið, að þingi fari brátt að ljúka, og því er undir hælinn lagt, hvort takast megi að afgr. málið. En ég tel þess fulla þörf, að það verði afgr. þegar á þessu þingi, og óhæfa að fresta því. En ég hygg, að ekki sé unnt að halda fund í fjhn., þar eð formaður hennar er nú ekki viðstaddur eða a. m. k. ekki hér inni í hv. d. Verið getur, að hann sé vant við látinn, er e. t. v. bundinn við einhver nauðsynleg störf. Þó sé ég enga ástæðu til að fresta málinu og get eigi fallizt á rök þau, er að því þykja hníga.