12.12.1945
Sameinað þing: 17. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2141 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Forsrh. (Ólafur Thors):

Út af ummælum, sem hér hafa fallið, vil ég segja það, að ég hef ekki talað digurbarkalega um þetta. Mér reyndari menn hafa tjáð mér, að þegar um vandamál væri að ræða sem þetta, þá væri oft venja, að slík plögg væru ekki birt fyrr en mörgum árum seinna, en þó mætti e. t. v. birta aðalefni þessa. En ég vil svo tilkynna það, að ég get ekki verið lengur við þessar umr., því að ég þarf að fara til þess að taka á móti sendiherra Rússa.