22.03.1946
Neðri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í C-deild Alþingistíðinda. (4805)
202. mál, orlofsheimili verkalýðsfélaga
Flm. (Sigurður Guðnason) :
Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 578, sem ég flyt, er um orlofsheimili verkalýðsins. Það er ekki ætlun mín að ræða frv. ýtarlega, og vil ég vísa til greinargerðarinnar. Síðan er orlofslögin tóku gildi, hefur það komið í ljós, að verkalýðsfélögin vantar yfirleitt griðastað fyrir fólkið, þar sem það gæti dvalizt og fengið hvíld. Þetta eru menn, sem vinna erfiðisvinnu og æskja hvíldar. En það hefur verið erfitt að ráða fram úr þessu. Í fyrsta lagi er illmögulegt að fá gistihús. Í öðru lagi eru þetta eldri menn, sem hvergi eiga samastað. Það er nú einu sinni svo, að ferðamenn, sem dveljast á hótelum, og fólk, sem er í sumarfríi, á ekki saman. Það hefur reynslan sannað. Nú hefur verið hafizt handa um byggingu hvíldarheimilis, og reynslan hefur orðið sú, að verklýðsfélögin geta ekki komið heimilunum upp á þann hátt, sem helzt er kosið. Enn má líta á það, að mörg félög hafa undanfarið fengið styrk frá hinu opinbera, og frómt sagt finnst okkur, að þau eigi það ekki fremur skilið en þeir, sem inna af hendi erfiðustu störfin í þjóðfélaginu. Það verður of dýrt fyrir verkamennina að dveljast á gistihúsum, og auk þess veitir það ekki næga hvíld. Við höfum hugsað okkur, að svona heimili gæti orðið keðja á milli verklýðsfélaganna, svo að fólk af öðrum svæðum gæti dvalizt þar einnig. — Ég vona, að mál þetta hljóti góðar undirtektir, og legg til, að því verði vísað til fjhn. að lokinni þessari umræðu.