26.03.1946
Neðri deild: 95. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í C-deild Alþingistíðinda. (4814)
203. mál, verkamannabústaðir
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það er eingöngu vegna ummæla, sem hér féllu frá hv. 4. þm. Reykv. í sambandi við það, sem segir í þessari grg. um óafgreiddar lánbeiðnir, sem liggi fyrir sjóðnum viðvíkjandi Neskaupstað. Það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði, að hér væri farið rangt með í grg., hygg ég, að muni vera á misskilningi byggt hjá honum, en þó af eðlilegum ástæðum. Það er rétt, að sú upphæð, sem hann nefndi, 510 þús., hún hefur verið afgreidd af sjóðnum. En þar að auki hefur sjóðsstjórninni fyrir nokkru borizt þaðan beiðni um 600 þús. kr. lán, sem mun liggja óafgreitt hjá sjóðsstjórninni. Þetta er mér kunnugt um, svo að hér er ekki rétt skýrt frá að þessu leyti til.
Hvað svo aðrar hliðar áhrærir, veit ég ekki um, en eins og hér hefur verið bent á, þá skiptir það ekki höfuðmáli. Ég álít, að þetta frv., gæti komið að miklu gagni, ef það næði fram að ganga, því að þannig er háttað málum víða í þorpum og kaupstöðum á landinu, að það má segja, að eina leiðin, sem fátækt fólk hefur til að byggja íbúðarhús, sé að byggja eftir l. um verkamannabústaði. En þegar svo fer, að byggingarsjóður getur ekki orðið við lánbeiðnum allra þeirra staða, sem til hans sækja, þá lenda þessi ágætu l. út úr framkvæmdinni, eftir þeim verður ekki hægt að beygja og því miður hefur borið nokkuð á því upp á síðkastið, að svo væri háttað með lán úr sjóðnum, að engar líkur eru til þess, að hann geti orðið við öllum þessum beiðnum. Því held ég, að það sé tími til þess kominn að gera einhverjar svipaðar ráðstafanir og þetta frv. gerir ráð fyrir til þess að tryggja sjóðnum nægilegt fé, svo að byggingar skv. l. geti haldið áfram af fullum krafti. Ég veit t. d. um það, að fyrir austan eru nú þegar stofnuð fjögur önnur byggingarfélög en þau, sem frv. getur um. Mér er kunnugt um það, að öll þessi byggingarfélög sendu sjóðsstjórninni lánbeiðni, og ég veit það, að á þeim stöðum, sem aldrei hafa getað byggt samkv. þessum l., þá þætti það ákaflega hart, ef þeir gætu ekki orðið aðnjótandi lána úr þessum sjóði, eins og stærri kaupstaðirnir hafa þó allir orðið. En það er augljóst, að með þessum takmörkunum á tekjum til sjóðsins getur hann ekki orðið við þessu nema nýjar ráðstafanir séu gerðar. Ég er því mjög meðmæltur þessu frv. eins og það liggur fyrir.