22.03.1946
Neðri deild: 93. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í C-deild Alþingistíðinda. (4822)

204. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Í sambandi við þetta mál, sem væntanlega fer til n., vildi ég koma að einu atriði. — Í fyrra var á hv. Alþ. samþ. till. um það að gefa læknum úti á landi kost á því að kaupa jeppabíla með innkaupsverði, og kom þá fram í umr., enda ómótmælanlegt, að leggja skyldi toll á þær samsvarandi þeim, sem lagður er á vörubifreiðar, þ. e. 10%. Nú hefur þetta hins vegar ekki verið framkvæmt þannig, svo að þessar bifreiðar hafa verið seldar læknum fyrir 5–6 þús. kr. og af þeim reiknaður 30% tollur. Vil ég biðja hv. n., sem fær þetta mál til athugunar, að athuga, hvort ekki hafi verið farið hér ranglega að gagnvart því, sem hv. Alþ. ætlaðist til. Það er alveg skýlaus vilji Alþ. fyrir því, þegar ákveðið var að selja þessa bíla til læknanna, að þeir væru seldir með innkaupsverði að viðbættum 10% tolli, en ekki 30% tolli. Skal ég svo ekki fara nánar út í þetta mál, þar eð hæstv. ráðh. er ekki viðstaddur, en vænti þess, að n. athugi í þessu sambandi, hvort ekki væri rétt að taka málið upp og láta hæstv. ráðh. hlíta þeim fyrirmælum, sem síðasta Alþ. hefur gefið í þessu máli.