03.04.1946
Neðri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í C-deild Alþingistíðinda. (4825)

212. mál, ljósmæðralög

Frsm. (Páll Zóphóníasson) :

Herra forseti. Þetta frv. er flutt skv. beiðni Ljósmæðrafélags Íslands. Heilbr.- og félmn. sendi landlækni frv. til umsagnar, og er umsögn hans prentuð hér með á þskj. 655, svo og greinargerð félagsins. Nefndin átti betur tal um frv. við Ljósmæðrafélagið, og voru gerðar á því nokkrar orðabreytingar.

Í þessu frv. eru það aðallega tvær breytingar, sem gerðar eru á ljósmæðralögunum, nr. 17 19. júní 1933. Í fyrsta lagi að ljósmæður taki laun sín frá bæjarsjóði, en ekki frá ríkinu. Ljósmæður vilja heldur semja um laun sín við hlutaðeigandi bæjarstjórnir en að þurfa að eiga um það efni undir Alþ. Nefndinni og landlækni þótti þetta vera sanngjarnt.

Hin breytingin er, að saminn skuli taxti yfir kaup ljósmæðra, en slíkur taxti er ekki til nú, en sagt er í samþykkt Ljósmæðrafélagsins, að þær fái sanngjarna þóknun fyrir störf sin. Brögð munu vera að því, að þeim hefur verið greitt kaup eins og á þeim tímum, er peningarnir höfðu annað gildi, og ekkert tillit tekið til núverandi ástands. Til að samrýma þetta þótti rétt að láta landlækni og forstöðukonu ljósmæðraskólans ákveða þennan taxta, en taka það ekki nánar fram í lögunum.

Lög frá 1944 eru felld inn í 1. gr. frv. Um aðrar breyt. er hér ekki að ræða. Ég hygg, að þar sem málið er flutt af nefnd, þá þurfi það ekki að fara til nefndar aftur, að vísu voru 2 nm. fjarstaddir, er hún fjallaði um málið, en ég álít ekki ástæðu til að bíða eftir því, að allir nm. væru á fundi.