08.04.1946
Neðri deild: 104. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (4828)

212. mál, ljósmæðralög

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Ég vil aðeins skýra deildinni frá því, sem breytir þó ekki frv. að neinu leyti, að í frv. hefur verið ruglað saman ljósmæðrafélagi Reykjavíkur og Ljósmæðrafélagi Íslands. En frv. er frá Ljósmæðrafélagi Íslands. Og vegna þess að form. Ljósmæðrafélags Reykjavíkur hefur látið í ljós óánægju út af þessum ruglingi, vildi ég taka þetta fram.