26.11.1945
Neðri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (484)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Frsm. 2. minni hl. (Bjarni Ásgeirsson) :

Herra forseti. Góðir hlustendur.

Mál þetta hefur nú farið í gegnum tvær umr. í neðri deild Alþingis, og hefur stjórnarliðið skipað sér um það næstum óskipt. Þó fór svo, að það varð í minni hl. í landbn. deildarinnar. Hv. 5. landsk., Barði Guðmundsson, neitaði að ljá því fylgi sitt, þótt hann vegna fylgis við ríkisstj. að öðru leyti léti undir höfuð leggjast að greiða atkv. gegn því. Það hefur heldur ekki þótt heppilegt að fela honum að taka þátt í þessum umræðum.

Annar þm. Skagf. (JS), sem er fulltrúi Sjálfstfl. í n., greiddi atkv. gegn málinu. Hann mun hafa gert kröfu til flokks síns um að fá að taka þátt í þessum útvarpsumræðum. Flokkur hans mun hafa þakkað honum gott boð, en ekki þótzt hafa þörf fyrir álit hans í þessu landbúnaðarmáli.

Það var þm. A.-Húnv. (JPálm) og kommúnistinn í nefndinni, sem stefnunni réðu fyrir stjórnarliðið og fluttu mál þeirra í deildinni. Verða sjálfsagt einhverjir til að óska Sjálfstfl. til hamingju með hina nýju forustu í landbúnaðarmálunum.

Ræðutími minn hér leyfir ekki að eltast við einstakar firrur og fullyrðingar, sem fram hafa komið hjá þeim stjórnarliðum, sem hér hafa talað.

Mun ég svara þeim með því að draga hér saman þau höfuðrök, sem fram hafa verið færð gegn þessu máli og enn þá hafa ekki verið hrakin, hvorki nú né áður.

Það fyrsta, sem við höfum fram að færa gegn frv. þessu og brbl., er það, að við teljum þau með öllu óþörf, vegna þess að ákvæði dýrtíðarlaganna um sex manna nefndar verðið hafi átt að gilda um verðlagningu afurða á þessu hausti. Í lögum þessum segir svo : Ef samkomulag verður um verðlagið í n., „skal þá verð á landbúnaðarafurðum ákveðið í samræmi við það á meðan núverandi ófriðarástand helzt.“

Ég bið menn að veita því athygli, að hér er talað um ófriðarástandið, en ekki ófriðinn sjálfan. Og hver vill mótmæla því, að ófriðarástand það, sem lá til grundvallar fyrir lagasetningu þessari, sé enn viðvarandi?

Ástæðan til þess, að nauðsyn þótti til bera að setja upp sex manna nefndar dóminn á sínum tíma, var: Í fyrsta lagi það, að hinir erlendu markaðir landbúnaðarins voru að mestu lokaðir, þannig að útilokað var fyrir bændur að geta notið þess háa verðlags, sem þá hafði skapazt í ýmsum markaðslöndum Evrópu, — þar sem aftur á móti sjávarafurðir landsmanna áttu opinn og ótæmandi markað í Bretlandseyjum með margföldu verði, borið saman við það, sem var fyrir styrjöldina. Í öðru lagi var svo það, að verðlagsröskun sú, sem hér hafði skapazt á styrjaldarárunum, þar sem m. a. kaupgjald við landbúnaðarstörf hafði hækkað meir en nokkuð annað í landinu, orsakaði það, að útilokað var, að landbúnaðurinn gæti miðað verðlag framleiðslu sinnar á innlendum markaði, hvort heldur væri við hina almennu kauplagsvísitölu innan lands eða við markaðsverð, sem hinn enski markaður gaf, en þar hafði bæði framleiðslukostnaði og verðlagi verið haldið niðri með róttækum aðgerðum ríkisvaldsins. Það var þá, sem Alþingi greip til þess ráðs að lögleiða eins konar dóm í verðlagsmálum landbúnaðarins, sem byggðist á því, að bændur bæru úr býtum fyrir vinnu sína svipað öðrum vinnandi stéttum landsins. Þessi dómur var sex manna nefndarsáttmálinn.

Ég get nú ekki komið auga á, að nokkur breyting hafi á þessu ástandi orðið.

Þegar þetta er athugað svo og hitt, að mikið af þeirri landbúnaðarvöru, sem á þessu hausti kom á markaðinn til verðlagningar, þ. e. sauðfjársláturafurðirnar, kom á framleiðslukostnað ársins 1944, og það verðlag, sem setja átti á þær, miðaðist m. a. einnig við tekjur sveitamanna 1944, það ár, sem lög þessi óvefengjanlega voru í gildi; virðist mér bæði eðlilegt og sjálfsagt, að ákvæði sex manna nefndar álitsins hefðu verið látin koma til fullra framkvæmda á þessu hausti. Og það leyfi ég mér að fullyrða, þó að ekki sé ég lögfræðingur, að hver sú ríkisstjórn, sem hefði viljað framkvæma þetta atriði með velvilja í garð landbúnaðarins, þannig að láta hann njóta þeirrar réttarverndar, er í lagaákvæði þessu fólst, gat hæglega forsvarað það að framkvæma lögin á þessu hausti — eða réttara sagt: hún gat ekki annað.

En ríkisstj. fór aðra leið, — hún nam þetta öryggisákvæði úr lögum — með bráðabirgðalögum skömmu áður en Alþingi kom saman til fundar. Og hún gerði meira. Hún nam einnig úr lögum þá skipan, sem gilt hafði um verðlagsákvörðun landbúnaðarvara, þar til sex manna nefndar ákvæðið gekk í gildi, — verðlagsnefndir mjólkur, kjöts og garðávaxta — og setti í þess stað hið nýja verðlagsvald.

Samkv. ákvæðum afurðasölulaganna áttu félagssamtök bænda 2 fulltrúa af 5 í verðlagsnefndunum, en neytendur 2. Oddamaðurinn var skipaður af landbrh. Þó að bændur muni aldrei hafa hugsað sér þetta fyrirkomulag nema til bráðabirgða, þá sættu þeir sig yfirleitt við það, vegna þeirrar hagsbótar, sem þeir töldu felast í afurðasölulögunum, og á meðan þeir höfðu þau áhrif á Alþingi, að öruggt þótti, að engin ríkisstjórn, hver sem hana skipaði, teldi sér fært að beita þá rangsleitni með því að velja nefndinni formann eða oddamann, sem beitti sér gegn réttmætum kröfum þeirra.

En eftir þá ummyndun, sem á Alþingi varð upp úr síðustu stjórnarskrár- og kjördæmabreytingu, varð þess fljótlega vart, að bændur töldu nauðsyn til bera, að sú breyting yrði gerð á verðlagslögunum, að þeir eða fulltrúar þeirra fengju óskorað meirihlutavald yfir verðákvörðuninni. Og það er nú komið á daginn, að þetta álit var ekki ófyrirsynju. En kröfur um þetta urðu enn ákveðnari, er frá leið, eftir því sem aðrar stéttir færðust í aukana í stétta- og hagsmunabaráttu sinni.

Nú er svo komið, að allar stéttir þjóðfélagsins hafa brynjað sig með harðsnúnum hagsmunasamtökum. Enda hefur virzt svo um skeið, að margar þessara stétta væru allsráðandi um kaup sitt og kjör. Iðulega hefur það skeð, að þær hafa auglýst kauptaxta sína án þess að nokkrir samningar hafi fram farið, — og undir það hafa menn orðið að beygja sig þegjandi og hljóðalaust. Og þó að nokkurt nöldur hafi stöku sinnum orðið út af kaup- og kjarabótakröfum stéttafélaganna, hafa menn jafnan orðið að sætta sig við þær í aðalatriðunum. Og það hefur nú um lagt skeið verið viðtekin regla, að enginn verk- eða vinnutaxti telst löglegur nema viðkomandi verklýðsfélag eða meiri hl. þeirra hafi goldið honum jákvæði sitt. Enda má telja það sjálfsagt í landi, þar sem lýðfrelsi og félagsfrelsi ríkir, — undantekningar eru þegar ríkisvaldið þarf að grípa til neyðarráðstafana í bili til að verja þjóðfélagið áföllum, eins og víða hefur skeð á styrjaldarárunum.

Það er því algerlega óviðunandi og óverjandi ráðstöfun af ríkisstj. gegn bændastéttinni að gera þá breyt. á lögunum, er svipta hana öllu valdi um, hvaða kaup og kjör henni eru ákveðin, með verðlagningu framleiðsluvöru hennar.

Það er alveg sama, hversu vel ríkisstj. og fulltrúum hennar hefur farið úr hendi ráðstöfun þessara mála Þetta tiltæki, að taka eina stétt þjóðfélagsins þannig fyrir og svipta hana gersamlega ráðstöfunarrétti, sem allar aðrar stéttir hafa yfir sínum málum, er jafnóverjandi fyrir því, og fordæmið gagnvart frjálsum félagssamtökum í landinu jafnhættulegt fyrir því.

Þetta tilræði hefur verið afsakað með því, að bændum einum væri falið hið nýja verðlagsvald, og þm. A.-Húnv. hefur þrástagazt á því, að þetta væri stór réttarbót fyrir bændur, frá því sem áður hefði verið. Vitanlega er þetta ekki annað en auðsæ blekking. Mundu aðrar stéttir telja sér réttarbót að svona lögum fyrir sig? Mundu sjómennirnir telja það réttarbót; ef einhver ríkisstjórn, sem þeir ef til vill bæru lítið traust til, fengi vald til að skipa nefnd eða ráð, sem ætti að ákveða þeim kaup og kjör, jafnvel þótt þar væri ákveðið, að einhverjir sjómenn ættu að skipa þann dóm? Mundi verkalýðsfélögunum þykja réttarbót að slíku ákvæði fyrir sig?

Og eitt dæmi enn. Mundi íslenzka þjóðin hafa talið það réttarbót á þeim árum, er konungur tók sér vald til að skipa helming af þingmönnum efri deildar Alþingis, að hann hefði útfært vald þetta þannig að skipa alla deildina eða allt þingið sjálfur? Mundi þjóðin hafa sætt sig við það, að henni hefði verið bent á, að þetta væru allt Íslendingar og sagt við hana : Þarna sjáið þið, málin eru í höndum Íslendinga?

Nei, hún hefði áreiðanlega séð í gegnum það. Hún hefði sagt: þessir menn eru ekki fulltrúar þjóðarinnar, heldur konungsins, enda voru þeir það. Hvenær sem þjóðina og konungsvaldið greindi á, hölluðust flestir þessara fulltrúa á sveif með konunginum, enda voru þeir valdir með það fyrir augum og báru ábyrgð gerða sinna gagnvart honum.

Á sama hátt eru búnaðarráðsmennirnir fulltrúar ríkisstj., en ekki bændastéttarinnar. Þeir eru valdir af stjórninni eftir pólitískum sjónarmiðum, til að vinna eftir pólitískum hagsmunalínum ríkisstjórnarinnar. Þetta vita þeir sjálfir, enda hefur það komið í ljós, að þegar ekki hafa farið saman þær kröfur, sem fulltrúar bændanna hafa fram borið, og hitt, sem ríkisstjórnin hefur talið sér hagkvæmt frá pólitísku sjónarmiði, þá hafa kröfur bændastéttarinnar orðið að víkja.

Þetta hefur greinilegast komið í ljós í viðhorfinu til sex manna nefndar verðsins. Fulltrúar bænda á síðasta búnaðarþingi gerðu nær einróma kröfu til ríkisstj., að sex manna nefndar grundvellinum yrði fylgt við verðákvörðun landbúnaðarvaranna á þessu hausti, og það er vitað, að bak við þá kröfu stendur meginhluti íslenzkra bænda.

Bændur líta sem sé almennt þannig á, að þó að hinn lagalegi réttur þeirra til sex manna nefndar verðsins sé af þeim tekinn, þá sé þó óskertur hinn siðferðilegi réttur, sem þeir hafa til að setja fullt sex manna nefndar verð á það, sem selt er á innlendum markaði. Þeim er ljóst, að þeir verða að taka á sínar herðar þau skakkaföll, sem sjálfum atvinnurekstrinum fylgja, svo sem óþurrka og önnur óhöpp, sem aldrei verða umflúin. Þeir sjá einnig fram á það, að nú verða þeir bótalaust að taka á sig halla þann, sem verður á útflutningsvörunum — samanborið við framleiðsluverð þeirra.

En þeir sætta sig ekki við það, að sá hluti vörunnar, sem seldur er á innlendum markaði, sé einnig af þeim tekinn og seldur undir því verði, sem hlutlaus verðdómstóll hefur talið, að bændur þyrftu að fá fyrir alla framleiðslu sína, ef meðalbóndinn átti að hafa aðstöðu til að bera svipað úr býtum fyrir vinnu sína og aðrar vinnandi stéttir þjóðfélagsins.

En þessari lágmarkskröfu bændastéttarinnar hefur verðlagsnefndin neitað og sett verðið um 10% niður fyrir sex manna nefndar verðið, lækkað svo saltkjötið á aðra krónu kg. dilkakjöts frá því á kostnað bænda, og ofan á þetta kemur svo að sjálfsögðu verðfallið vegna útflutningsins, sem enginn veit enn, hve mikið verður.

Það má þó telja víst, samkv. áliti þeirra manna, er kunnugastir eru þessum málum, að verð á sauðfjárafurðum verði stórum lægra til bænda nú en s.l. ár, enda þótt framleiðslukostnaður hafi hækkað á sama tíma.

Það er svo sem auðséð, hvaðan andstaðan gegn sex manna nefndar verðinu er runnin. Flokksblöð ríkisstj. voru fljót að túlka þá kröfu sem hóflausa og ábyrgðarlausa kröfupólitík. Og stjórnarfulltrúarnir í verðlagsnefndinni voru ekki í miklum vafa um, á, hverja sveifina þeir áttu að snúast.

Í umr. um mál þetta á Alþingi og í blöðum er þessi ráðstöfun varin af stuðningsmönnum stj. með því, að kaupgeta þjóðarinnar hafi ekki leyft hærra verðlag en þetta. Það hafa þó verið færð rök að því, að ekki hefði þurft að hækka mjólkurlítrann nema um 12 aura og kjötkílóið nema um 90 aura, til að fullt sex manna nefndar verð hefði náðst á innlendum markaði. Og svo segja menn, að þessi hækkun hefði orðið til þess að sprengja kaupgetuna. Það er nú svo.

Það er þó ýmislegt, sem bendir á annað. Það er á allra vitorði, að tekjur launamanna í landinu hafa aldrei verið jafnríkulegar og þetta ár. Eftirspurn eftir almennum verkamönnum hefur aldrei verið meiri — t. d. við húsbyggingar og aðrar framkvæmdir. Starfsmenn ríkis og bæja hafa fengið stórkostlegar launabætur á árinu og sömuleiðis mikill hluti verzlunarstéttarinnar.

Nú nýskeð er lokið vinnudeilu á siglingaflotanum. Ríkisstj. skarst að síðustu í málið og réð lausn þess. Eitt stjórnarblaðið, Alþýðublaðið, segir svo um samningana : „Samningar þessir eru gerðir á þeim grundvelli, að kaup sjómanna sé í samræmi við kaup annarra alþýðustétta í landinu.“

Annað stjórnarblað, Morgunblaðið, gefur þær upplýsingar, að samkv. samningum þessum verði árskaup háseta og kyndara um og yfir 30 þús. krónur á ári.

Þetta er þá samkv. upplýsingum stjórnarblaðanna kaupgjald alþýðustéttanna í landinu á því herrans ári 1945.

Samkv. útreikningi hagstofunnar átti meðalkaup bóndans á þessu ári að geta verið um 18 þús. krónur, ef hann hefði fengið fullt sex manna nefndar verð fyrir allar sínar afurðir, og þar í eru talin þau hlunnindi, sem honum eru reiknuð frá búinu samkv. sex manna nefndar álitinu. En vegna verðfalls frá sex manna nefndar verðinu á hinum útfluttu vörum lækkar kaup þetta stórum. Þrátt fyrir það telur verðlagsnefnd sér rétt og skylt að lækka kaup bóndans enn til viðbótar þessu með því að færa innlenda verðið um 10% niður fyrir sex manna nefndar verðið — til þess að ofbjóða ekki kaupgetu þeirra, sem samkv. framannefndum upplýsingum hafa allt að tvöföldu árskaupi bóndans.

Það er enn fremur vitað um kaupgetu þjóðarinnar, að hún telur sig hafa ráð á að borga um 40–50 milljónir á ári fyrir vín og tóbak og milljónir og aftur milljónir fyrir ýmsan varning, þarfan og óþarfan. En þegar á að fara að verðleggja íslenzk matvæli, unnin af íslenzkum höndum úr íslenzkri jörð, þá þykir ekki annars kostur en að fara með verðið niður fyrir viðurkennt framleiðsluverð, svo að kaupgeta þjóðarinnar springi ekki í loft upp.

Það er hægt að segja mönnum þetta. En þeir taka það bara ekki alvarlega. — Annars er allt tal um kaupgetu almennings í þessu sambandi ákaflega mikið út í bláinn. Það vita allir, að mestur hluti borgaranna hefur þannig ráðningarkjör, að kaup hans hækkar að sama skapi og verðið á þessum nauðsynjavörum.

Hitt er svo annað mál, að gjaldgeta ríkissjóðs og framleiðslustarfsemin í landinu yfirleitt þolir ekki þá verðbólgu, sem hér hefur verið sköpuð, hvað þá aukningu hennar. En sú verðbólga stafar ekki eingöngu af allt of háu verði á kjöti og mjólk, heldur einnig af of háum launagreiðslum og kaupgjaldi, of háum flutningsgjöldum á landi og sjó, of háum milliliðakostnaði á viðskiptum landsmanna, of háum byggingarkostnaði og þar af leiðandi dýrara húsnæði o. fl. o. fl. Þetta hefur bændastéttin séð og viðurkennt fyrir löngu. Fulltrúar hennar á búnaðarþingi buðust því til að fella af viðurkenndu verði á vörum bændastéttarinnar, ef aðrar stéttir og ríkisvaldið vildu koma á móti og hver leggja fram sinn skerf til lækkunar verðbólgunni. Á síðastliðnu hausti réttu fulltrúar bænda á búnaðarþingi öðrum stéttum og ríkisvaldinu höndina til samstarfs í þessum málum, þannig að þeir byrjuðu á að falla frá réttmætum kröfum bænda um verðlag landbúnaðarvara, í þeirri von, að þessir aðilar kæmu til móts við hana til sameiginlegra aðgerða í málinu. En það var slegið á þessa framréttu hönd bændastéttarinnar. Henni var svarað með nýjum launakröfum annarra, hækkuðu kaupgjaldi, hækkuðum launum og tilslökun hennar misnotuð af hinni nýju ríkisstjórn, til þess að halda enn um stund áfram á vegum aukinnar verðbólgu og dýrtíðar í landinu. Árangurinn hefur svo orðið sá, að þótt verð á landbúnaðarvörum stæði óbreytt um tveggja ára skeið, þá hefur framfærsluvísitala hækkað frá síðasta hausti og framleiðslukostnaður landbúnaðarvara um 10%.

Ríkisstj. vissi það, að bændastéttin mundi ófáanleg til að gera að nýju einhliða tilslökun af sinni hálfu eftir það, sem á undan var gengið. Þess vegna hugkvæmdist henni að koma á þessu heimatilbúna fulltrúavaldi, til að afhenda henni á altari dýrtíðarinnar þær fórnir af hálfu bændastéttarinnar, sem stjórnin vissi, að bændastéttin var ákveðin í að færa ekki aftur fyrr en sýnilegt væri, að aðrir aðilar vildu taka og tækju á sig sams konar byrðar.

Þetta hlutverk sitt virðist verðlagsnefndin hafa skilið mæta vel og tekizt framkvæmdin eftir því. Það eru þessar aðferðir allar, sem bændur mótmæla nú um land allt. Mótmæli þessi liggja nú fyrir svo að segja af öllu landinu. Nú síðast var fyrir nokkrum dögum haldinn fjölmennur bændafundur um málið á Austurlandi. Þar var mættur einn harðsnúnasti formælandi þessa ofbeldis, sem einnig á sæti í verðlagsnefndinni. Hann reyndi að bera í bætifláka fyrir þetta tiltæki ríkisstj. og stamaði að síðustu upp tillögu um, að bændur skyldu þola þetta sem bráðabirgðafyrirkomulag. En jafnvel sú væga tillaga var felld af 90% fundarmanna.

Ég hygg, að þetta sé nokkuð glögg mynd af viðhorfi bænda til þessa skipulags um allar sveitir.

Bændur krefjast þess, að þeir eða fulltrúar, sem þeir sjálfir fela umboð til þess, fái óskorað vald til að segja til um, hvaða verð skuli sett á framleiðsluvörur þeirra, eins og aðrar stéttir segja til um kaup og kjör, sem þeim eru ákveðin.

Það er hægt að hugsa sér í framtíðinni tvenns konar aðferðir við verðákvörðun landbúnaðarvara á innlendum markaði: Önnur er sú, að haldið verði áfram að verðleggja þær eftir innlendri vísitölu, eins og gert var með sex manna nefndar grundvellinum, og væri ekki óeðlilegt, að sá grundvöllur væri endurskoðaður öðru hverju við breyttar ástæður.

Ef hægt væri að halda við þannig löguðu samkomulagi um verðlagið á milli neytenda og framleiðenda, væri það á margan hátt æskilegast. Að öðrum kosti yrði að verðleggja vöruna eftir lögmáli framboðs og eftirspurnar, bæði á erlendum og innlendum markaði.

En hvor leiðin sem farin yrði, verður það ófrávíkjanleg krafa bændastéttarinnar, að hún eða fulltrúar, sem hún kýs og bera ábyrgð gagnvart henni, hafi vald til að samþ. verðlagið fyrir hönd bændastéttarinnar.

Nú liggur fyrir Alþ. og er komið fyrir landbn. Nd. frumvarp til l. um verðlagsráð landbúnaðarins. Frumv. þetta hefur verið samið af Búnaðarfélagi Íslands og í öllum aðalatriðum samþykkt af búnaðarsamböndunum.

Þar er svo fyrir mælt, að stéttarsamband bænda og fulltrúar frá sölustofnunum þeirra fari í sameiningu með verðlagsmál og afurðasölu landbúnaðarins. Var það ætlun okkar flutningsmanna, að frv. þetta kæmi í staðinn fyrir löggjöfina um búnaðarráð.

Frv. þetta hefur ekki enn fengizt afgreitt frá landbn. Þess vegna bárum við í minni hl. fram þá brtt. við búnaðarráðsfrumv., að stéttarsamband bænda tæki við störfum þess fyrst um sinn. Sú till. var felld í Nd.

Í öðru orðinu talaði þm. A.-Húnv. (JPálm) um, að hann gæti hugsað sér, að stéttarsamband bænda fari með mál þessi, ef slíkt samband væri stofnað á réttum grundvelli, svo að hægt væri að viðurkenna það. En það stéttarsamband, sem enn væri til, kæmi ekki til greina. Í því sambandi minntist þm. A.-Húnv. á till. Búnaðarsamb. Suðurl., sem verið hefði í alla staði eðlileg.

Það er auðséð, hvað þm. er hér að fara. Fyrir honum vakir það eitt að sundra bændastéttinni, því að sýnilegt er, að hann hatar og hræðist samtök hennar. Það er víst, að hefði orðið ofan á á Laugarvatni að stofna sambandið eftir tillögum Búnaðarsamb. Suðurl., þá hefði komið annað hljóð í þennan strokk. Þá hefði hann talað fagurlega um Bf. Ísl. og hve eðlilegt það væri, að sú gamla, merka stofnun bændanna tæki við forustu þessara mála, — því að fyrir honum vakir fyrst og fremst að ala á deilum og sundrungu. Hann og þeir aðrir, sem fyrir slíkum deilum standa, reyna að mikla fyrir sér og öðrum það djúp, sem staðfest sé á milli þess skipulags, er B.S.S. vilda koma á í stéttarsamb., og því, sem ofan á varð. En þetta er hin mesta fjarstæða, því að hvort tveggja skipulagið var í grundvallaratriðum það sama. Hvort tveggja byggði á hreppabúnaðarfélögunum sem undirstöðu. Hjá báðum var kosningafyrirkomulagið hið sama. Hjá báðum voru aðalverkefnin þau sömu. Höfuðmunurinn liggur í því, að samkv. skipulagi búnaðarþings var ramminn að stofnun stéttarsambandsins settur inn í lög Búnaðarfélags Íslands á sama hátt og rammi að hreppabúnaðarfélögunum og búnaðarsamböndunum. Og það var gert fyrst og fremst í þeim tilgangi að marka þessari stofnun sitt ákveðna verksvið, svo að útilokað væri, að árekstur gæti orðið milli hinna ýmsu greina þessa bændafélagsskapar um starfssvið og verkefni. Að öðru leyti er stéttarsambandið fullkomlega sjálfstæður aðili gagnvart Búnaðarfélagi Íslands um sín sérmál; en það eru hin stéttarlegu hagsmunamál bændanna.

En það, sem auk þessa þótti mæla með því að tengja stéttarsambandið á framangreindan veg formlega Búnaðarfélagi Íslands, var það, að Bf. Ísl. höfðu verið fengin nokkur fjárráð með stofnun búnaðarmálasjóðs, — eins konar eigið fé, sem eðlilegt þótti, að stéttarfélagsstofnun bændanna gæti að einhverju leyti notað til starfsemi sinnar. En sá ljóður hafði á orðið um þessa löggjöf, að þar hafði verið sett inn ákvæði í þinginu á síðustu stundu fyrir atbeina þm. A.-Húnv. og kommúnista, að fulltrúar bændanna voru gerðir ómyndugir um ráðstöfun þessa fjár, sem bændur sjálfir höfðu lagt fram til félagsstarfsemi sinnar. Ákvarðanir þeirra voru gerðar ómerkar, nema samþykki landbrh. kæmi til hverju sinni.

Bændur yfirleitt undu þessu hið versta, að vera þannig háðir geðþótta hvers þess manns, er Alþingi þóknaðist á hverjum tíma að setja í sæti landbrh., um meðferð þessa máls. Kröfðust þeir þess að fá óskorað vald yfir sjóðnum. Í samræmi við þær óskir bárum við hv. 2. þm. Skagf. (JS) fram frumv. á þessu þingi, þar sem svo er fyrir mælt, að ákvæði um vald ráðh. yfir ráðstöfun sjóðsins félli niður. Og hvað halda menn, að svo gerist? Jú, þm. A.-Húnv. og kommúnisti í landbn. fóru enn á stúfana og vilja auðsjáanlega betrumbæta sínar fyrri tillögur; hafa víst ekki meira en svo treyst landbrh. til að viðhafa það ofríki um ráðstöfun sjóðsins, sem til var ætlazt af þeim. Og nú eru tekin af öll tvímæli, því að nú bera þeir fram till. í þá átt eð taka búnaðarmálasjóð með öllu af Bf. Ísl. Og rökin fyrir þessari óhæfu eru þau að búnaðarþingi hafi verið mislagðar hendur með úthlutun fjárins: Þó vita þessir menn að bændur sjálfir kjósa fulltrúa á búnaðarþing og það nú á næsta vori, svo að þeim er innan handar að skipta um fulltrúa og stefnu í málum þessum, ef þeim líkar ekki það, sem gert hefur verið. En þeim er víst ekki trúað til þess, heldur á nú að fá sjóðinn í hendur búnaðarsamböndunum, en vel að merkja ekki til frjálsra afnota, heldur með því skilyrði, að þau verji honum til jarðabóta og annarra svipaðra framkvæmda. Það vantar ekki að bændum sé sagt til verka. Þeir mega framleiða matvæli, en það er bezt fyrir þá að vera ekkert að skipta sér af því, hvaða verð er sett á framleiðslu þeirra. Þeir mega rækta jörðina, en þeir þurfa ekkert að vera að hugsa um að koma upp húsnæði yfir sameiginlega félagsstarfsemi bændanna í landinu, né greiða fyrir því, að bændur geti átt athvarf, sem þeir geta leitað til, er þá ber að garði í höfuðstaðnum. Ekki stuðla að því að bændur geti eignazt myndarlegt félagsrit, sem fullnægi þeim kröfum sem aðrar stéttir gera í þeim efnum. Ekki stuðla að kynnisferðum sveitafólks eða nýjungum í búnaði og bústörfum, og síðast en ekki sízt, ekki styðja stéttarsamtök bænda, og það er nú máske aðalatriðið. og yfirleitt er þeim talið bezt að skipta sér sem minnst af félagsmálum sínum. Fyrir því sér hv. þm. A.-Húnv. og fylgifiskar hans á Alþingi.

Það hefur allmikið verið rætt um austrænt lýðræði að undanförnu bæði í blöðum og á mannfundum. — Austur-Húnvetningar mega þakka fyrir, ef ekki verður hér eftir talað um austur-húnvetnskt lýðræði í búnaðarmálum, ef þeir beita þessum einkennilega lýðræðisfrömuði lengi fyrir sig. Það er sýnilega engin hending, hvernig búnaðarráðsvalinu er fyrir komið. Hér virðist sem sé vera um skipulagða ofbeldisstarfsemi að ræða í garð frjálsra bændasamtaka í landinu. Og þessi rauðbrúna ofbeldisbaktería virðist vera sameiginlegt afsprengi lýðræðishugmynda þm. A.-Húnv. og sálufélaga hans annars vegar og kommúnistanna hins vegar. Og hún virðist hafa hlotið hin ákjósanlegustu lífsskilyrði í herbúðahverfi ríkisstj. Og svo skæð er þessi baktería, að maður eins og hv. 2. þm. Rang. (IngJ), sem margir höfðu þó vonað, að væri hér ekki í bráðri hættu, hefur nú einnig tekið pestina. Hann hefur sennilega haldið sig of mikið í herbúðunum. Lent í ástandinu þessu nýja. Líklega verið eitthvað veill fyrir og ekki þolað þetta. Hann hefur nú borið fram í þinginu frv. um að taka hið félagslega vald með lögum af bændum um það, hvernig þeir ráðstafa mjólkurflutningum sínum. Þar er svo fyrir mælt, að hvar sem 40 bændur vilja ekki beygja sig undir ákvæði meiri hluta um mjólkurflutninga, þó að meiri hlutinn skipti hundruðum félagsmanna, þá geti þeir skorizt úr leik og þannig sé hægt að sundra og eyðileggja það flutningakerfi, sem þorri bænda á flutningasvæðinu telur heildinni fyrir beztu. Það er sýnilegt, að hér er hafin nokkuð einkennileg nýsköpun í félagsmálum bænda. Hvenær sem einhver félagsskítur neitar að beygja sig undir löglega ákvörðun meiri hluta, þá er honum opnuð leið til þess að fara með ágreiningsmál sín inn á Alþingi og láta kúga meiri hlutann með lögum.

Hvaða félög koma svo næst? Verða það kaupfélögin? Máske koma bráðum lög, sem heimila minni hluta í kaupfélagi að losa sig við meiri hlutann á voðfelldan hátt eftir siglfirzkri fyrirmynd, er ofríkisfullur minni hluti í félaginu telur það henta sér: Eða verða það búfjárræktarfélögin? Ætli það komi ekki bráðum lög um það, að ef einhver ákveðinn minni hluti í nautgriparæktarfélagi vill fá rautt kynbótanaut, en meiri hlutinn kýs annað, þá skuli meiri hlutinn samt sem áður skyldugur að taka rauða tarfinn og nota hann einnig handa sínum kúm, að viðlögðum háum sektum eða fangelsi? Enginn veit, hvar þetta getur endað. Þessum mönnum virðist vera svo rík nautn að því að beita ofbeldi og láta kenna aflsmunar, að þeir horfa ekki í að gera sig að viðundri og athlægi um land allt, eins og t. d. þm. A.-Húnv. og félaga hans, með brtt. um búnaðarmálasjóð. Fyrst á að heimta ákveðið hundraðsgjald af söluvörum bænda fyrir milligöngu ríkisins. Síðan á að senda fé þetta aftur heim í búnaðarsamböndin eftir sömu hlutföllum og það er frá þeim komið: Er ekki rökrétt áframhald af þessu, að búnaðarsamböndin skipti því svo niður á hreppabúnaðarfélögin eftir þeim hlutföllum, sem það er frá þeim komið, og þau skipti því síðan á milli bændanna innan hreppabúnaðarfélaganna eftir þeim hlutföllum, sem það er frá þeim komið. Þá er hringferðin fullkomnuð, og þá ætti þessi forframaði peningur að vera orðinn fær um að rækta og prýða garðinn hjá húsbóndanum, eftir allt, sem hefur fyrir augun borið á þessari löngu orlofsreisu.

En þó að tillögur þessara manna séu bæði fáránlegar og hlægilegar, þá eru þær þó fyrst og fremst alvarlegar. Það er sannarlega alvarlegt, ef svo færi, að meiri hl. Alþingis 1945, menn og flokkar, sem allir skreyta sig með orðunum lýðræði og félagsfrelsi, fengist til að standa að löggjöf sem þeirri, er ég nú hef gert að umræðuefni, fengist til að hundelta eina stærstu og merkustu stétt landsins með slíkri kúgunarlöggjöf. En kostur er þó við þessa herferð alla saman; að nú þurfa bændur ekki lengur að vera í vafa um, hvaðan vindurinn blæs, og geta hagað sér eftir því.

Bændastéttin hefur til þessa verið, mér liggur við að segja, svo fávís, að halda, að félagssamtök hennar væru ekki talin þjóðfélagsfjandsamleg starfsemi, jafnvel ekki Stéttarfélagsskapur hennar fremur en annarra stéttarfélaga. Nú er helzt svo að sjá, að þetta sé allt hinn mesti misskilningur. Og þá er að taka því eins og menn. Og það veit ég, að bændur gera. Ég veit, að þeir svara þessu með því að þoka sér enn betur saman um félagsréttindi sín og hagsmuni. Ég veit, að þessi atlaga verður til að styrkja þá, en ekki veikja. Og ég þykist vita að í þessari baráttu muni þeir ekki standa einir. Ég tel það víst, að félagssamtök annarra frjálshuga manna muni einnig standa með þeim í baráttunni gegn ofbeldinu. Ég tel það víst, að sjómenn, verkamenn og aðrir borgarar þjóðfélagsins, sem frjálsum félagssamtökum unna, sjái það, hvað sem fulltrúar þeirra á Alþingi telja sér fært í þessum efnum, að þeim muni ekki vera hollt að ala þennan snák lengi við brjóst sitt.