26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (4869)
239. mál, lántaka til hafnarframkvæmda
Flm. (Pétur Ottesen) :
Ég á nú erfitt með mál sökum hæsi, en freistast þó til að segja nokkur orð. Ég get vísað til raka um stofnlánadeild sjávarútvegsins í sambandi við öflun fjár í þessu skyni og einnig til þeirra lána, sem sveitarfélögum eru ætluð í þessu skyni með lágum vaxtakjörum. Það er mjög brýn þörf skjótra aðgerða í þessum málum, og vil ég skírskota til hins mikla áhuga, sem ríkt hefur hér á Alþ. um aukningu skipastólsins, og vil benda á, að frumskilyrði fyrir því, að það átak megi takast, er að framkvæma aðgerðir eins og þá, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Með tilliti til þeirrar nauðsynjar, sem hér knýr á, vænti ég þess, að þessu máli verði vel tekið og það fái fljóta afgreiðslu.