26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í C-deild Alþingistíðinda. (4872)

239. mál, lántaka til hafnarframkvæmda

Flm. (Pétur Ottesen) :

Með tilliti til þess, sem ég sagði áðan, þá vil ég mælast til þess, að málinu verði ekki vísað til nefndar. Það er þýðingarmikið, en hins vegar einfalt og vitað, að ef það fer til nefndar og ef því hlekkist á þar, sem oft kemur fyrir, þá þýðir það, að málið fær ekki afgreiðslu á þessu þingi. Ég vil því mælast til þess, að málið fái að ganga í gegn án þess að fara í nefnd.