26.11.1945
Neðri deild: 39. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (489)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Eysteinn Jónsson:
Það varð heldur fátt til fanga hjá hæstv. fjmrh. (PM). Hann reyndi að gera sér mat úr því, sem hv. þm. Mýr. (BÁ) benti réttilega á, að ófriðarástand ríkti enn í viðskiptamálunum svipað og verið hefur. Hann vildi fá menn til þess að trúa því, að hv. þm. Mýr. vildi koma mönnum til að líta svo á, að ófriðurinn væri enn yfirstandandi. Enn þá er Evrópa lokuð, og þess vegna er ekkert breytt af þeim forsendum, sem voru fyrir því að ákveða uppbætur á sínum tíma.
Hæstv. fjmrh. var að reyna að gefa í skyn, að stéttarsamtök bænda væru pólitísk og að Framsfl. stæði að því að nota þau sér til pólitísks framdráttar. Hæstv. ráðh. gleymir að geta þess, að meiri hl. í stjórn stéttarsamtakanna eru sjálfstæðismenn, menn sem tilheyra hans eigin flokki. Það ber því vott um illvilja hæstv. ráðh. í garð samtakanna, að hann skuli reyna að gera þau tortryggileg á þennan hátt. —
Hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) sagði, að ríkisstj. ráði ekki fram úr fjármálum ríkisins, ef bændur verðleggja vörur sínar sjálfir. Mætti spyrja: Hverjar eru þær aðgerðir, sem ríkisstj. ræður, á meðan hún ræður ekki við kaupgjaldsmálin? Hún ræður engu. Kaupið hefur hækkað um 20% frá því að núv. ríkisstj. tók við völdum, en á sama tíma hefur verðið á landbúnaðarafurðunum staðið í stað. Það er því eitthvað annað og meira en verðið á landbúnaðarafurðunum, sem hefur áhrif á dýrtíðarvísitöluna. Ég ætla, að þetta sé nægilegt svar við hinum heimspekilegu bollaleggingum hv. þm. V.-Ísf.
Það er tilhæfulaust, sem hv. þm. A.-Húnv. (JPálm) sagði, að blaðið Dagur hafi unnið gegn kjötsölunni. En hitt hafði blaðið gert, að sýna fram á, að þröngt mundi fyrir dyrum hjá neytendum bæjanna að kaupa kjötið við hækkuðu verði, án þess að það sé tekið til greina í vísitölunni, eins og það átti sér stað í haust. Neytendur vissu ekki, hvert kjötverðið mundi verða, og þess vegna seldist svo lítið af kjöti í sláturtíðinni. Neytendur veigruðu sér við að kaupa sér vetrarforða af kjöti í sláturtíðinni eingöngu vegna óvissunnar um verðið.
Ég öfunda ekki fulltrúa sósíalista af þessum umræðum. Hv. 2. landsk: (AS) kyrjaði hér lofsöng um dýrtíðina: — „Það þarf ekki að fara mörgum orðum um áhrif dýrtíðárinnar á afkomu þjóðarinnar. Öllum kjarabótum sem verkamenn og bændur hafa náð, er stefnt í hættu. Því meir sem dýrtíðin vex, því meira verður öryggisleysið. Fyrir braskarana skapar slíkt ástand aftur á móti skilyrði fyrir ofsagróða. Meðan búskaparhættir auðvaldsins haldast, hlýtur ört vaxandi dýrtíð óhjákvæmilega að leiða til hruns fyrr eða síðar og þess atvinnuleysis, sem því er samfara.“ Þetta er ekki úr Tímanum: Þetta er úr kosningastefnuskrá Sósfl. við síðustu alþingiskosningar. Hver er svo þáttur kommúnista í landbúnaðarmálunum? Þegar 6 manna nefndar álitið var fyrst gefið út, gortuðu þeir af þátttöku sinni í því og sögðu að hagsmunum bænda væri borgið og að nú ættu bændur og verkamenn að taka upp virka sameiginlega baráttu fyrir hagsmunamálum sínum: Síðar áttu þeir hlut að því að setja þessi illræmdu l. sem svipta bændur sjálfsákvörðunarréttinum um sín eigin málefni og jafnframt koma svo fulltrúar þeirra nú og standa hér kófsveittir við að verja þessa löggjöf. Það þarf liprari mann en hv. 2. landsk. (ÁS), búnaðarráðsmann af náð hæstv. fjmrh., til þess að það megi takast, og ekki tókst hæstv. menntmrh: (BrB) það betur:
Umræðurnar hér á Alþ. um þetta mál hafa staðfest eftirfarandi:
Með lögunum um búnaðarráð er bændastéttin svipt allri íhlutun um verðlagsmál landbúnaðarins. Var þá ekki nóg að hafa form. ráðsins, heldur þurfti líka að dreifa ábyrgðinni og fá dularbúning á ráðstafanirnar.
Þessi ráðstöfun var gerð af ríkisstj. til þess að koma fram þeirri verðlagningu landbúnaðarafurða, sem hún vissi fyrirfram, að var gagnstæð vilja bændastéttarinnar. Það lá alveg ljóst fyrir með samþykktum búnaðarþings og stéttarsambands bænda, að þeir ætluðust alls ekki til, að hér yrði gengið lengra til lækkunar frá sex manna nefndar álitinu en gert hafði verið í fyrra.
Búnaðarráð er því skipað til þess að koma fram verðlækkun landbúnaðarafurða í þágu ríkisstj., en bændum um leið storkað með þeirri fjarstæðu, að verðlagningarvaldið hafi verið afhent þeim á þennan hátt.
Svo lágt hafa menn lagzt í vörninni, að því hefur verið haldið fram, að þetta hafi orðið að gera til þess að koma í veg fyrir ábyrgðarlausar ákvarðanir bændastéttarinnar í verðlagsmálum. Þetta er vitnisburðurinn um þá stétt manna, sem ein hefur boðið fram tilslakanir í dýrtíðarmálunum og aldrei hefur látið sér til hugar koma að fara lengra í málinu en sameiginlegur verðlagsdómstóli þeirra og fulltrúa launastéttanna hefði metið sanngjarnt og réttlátt. Það var nú allt ábyrgðarleysið, sem fyrirhugað var að sýna.
Meiri hluti búnaðarráðs hefur notað ráðherrafengið vald sitt til þess að lækka nettóverð sláturfjárafurða, í stað þess að færa þær og aðrar landbúnaðarafurðir til samræmis við vísitölu framleiðslukostnaðar. En á sama tíma hefur þessi stofnun hækkað þóknun til milliliða, sem kjötið selja, um 48 aura á hvert kg. kjöts, og eru með því teknar 2—2,5 millj. kr. úr vasa bændanna, eftir því hve mikið selst innanlands.
Á kjötsölumálunum hefur verið þannig haldið á s.l. hausti af hendi stjórnarvaldanna, að líkast er því, sem fyrir valdhöfunum hafi vakað að spilla sem mest fyrir sölu afurðanna. Þess hefur þá einnig verið vandlega gætt, að enginn þeirra manna, sem mesta þekkingu og reynslu hafa í þessum málum, kæmi þar nærri. Hv. 2. landsk. (ÁS) las upp tjónið af því.
Ríkisstj. hóf göngu sína með því að misnota tilslökunarboð búnaðarþings frá í fyrrahaust með því að setja fast afurðaverðið, en stofna um leið til kauphækkana um landið þvert og endilangt. Þó hlaut stjórnarliðinu að vera það ljóst, að enginn búnaðarþingsfulltrúi né nokkur bóndi hafði né mundi gefa samþykki sitt til þess, að þannig væri á málinu haldið. Þessar þokkalegu aðfarir stjórnarflokkanna er svo reynt að nota í þessum umræðum sem afsökun fyrir því, að bændastéttinni eru nú skipaðir forráðamenn til þess að ákveða verðlagningu landbúnaðárvara í annað sinn í ósamræmi við hlut annarra og nú án útflutningsuppbóta. — Hver er sá, sem ekki kannast við þetta? Ríkisstj. hreyfir hvorki hönd né fót til þess að standa gegn ýmsum kröfum um hækkanir, sem ekki hafa aðeins haft áhrif á dýrtíðina, heldur auka einnig ósamræmið milli stétta. Hún hefur meira að segja ýtt undir ýmsar slíkar kröfur, og þegar þær hafa verið á ferðinni, hefur ríkisstj. verið óþreytandi í því að draga fram kosti dýrtíðarinnar og benda á að öllu muni óhætt. Hefur mönnum þá heyrzt, að dýrtíðin væri alveg mátuleg að dómi stjórnarvaldanna. En þegar bændastéttin gerir sig líklega til þess að notfæra sér tildæmdan rétt í verðlagsmálum, uppgötvar ríkisstj. allt í einu dýrtíðarvoðann og tekur sér vald til þess að koma í veg fyrir þetta.
Þessar ráðstafanir ríkisstj. og stjórnarflokkanna eru gerðar sömu vikurnar og bændur landsins eru að stofna stéttarsamtök, sem einmitt er ætlað að fara með þessi mál á hliðstæðan hátt og aðrar stéttir skipa sínum málum án íhlutunar stjórnar og löggjafarvalds. Bændur mundu ekki finna að því, þó að eftirlit væri haft með verðlagi á afurðum þeirra, ef aðrar stéttir yrðu að búa við það sama og þeim gert jafnt undir höfði og öðrum stéttum landsins. Það er engin krafa um einræði. Það er aðeins krafa um grundvöll að frjálsri verðmyndun. Bændur verða að taka tillit til markaðsskilyrða og eru bundnir af mörgu öðru, t. d. innflutningi amerísks smjörs. Þeir þola hömlur eins og aðrir, en ekki hitt, að þeir séu blendnir, þegar aðrir eru frjálsir. Jafnframt eru hafnar ofsóknir á hendur þessum stéttarsamtökum, og er svo langt gengið, að einn úr stuðningsliði stj., sem á þó sjálfur að teljast bóndi, flytur tillögur á Alþingi, sem eiga að koma í veg fyrir, að bændur landsins geti notað nokkuð af því fé, sem þeir greiða sjálfir í búnaðarmálasjóð, til þess að standast kostnað við samtök sín.
Í nál. á þskj. 207 heldur þessi þm. því fram, að réttast sé, að Alþingi ákveði, hvernig verja skuli búnaðarmálasjóðnum, og sjái um, að honum sé betur varið en svo, að menn hafi hann til þess — og þá tek ég það orðrétt, að „éta það út á snakkfundum og eyða því í ferðakostnað pólitískra spekúlanta.“ Þetta er vitnisburður þessa hv. þm. (JPálm) um félagsstarfsemi bændanna og þá mörgu menn úr bændastétt, sem bændur fela forustu í málum sínum. Og undir þetta skrifar form. stærsta verkamannafélags landsins (SG), verkamannafélagsins Dagsbrúnar.
Hvað ætli menn segðu um þann fulltrúa verkamanna á Alþingi, sem þannig leyfði sér að tala um fundi verkalýðsfélaganna, Alþýðusambandsins og trúnaðarmenn verkamanna? En þetta er bændum ætlað að þola. Hvað er þess langt að bíða, að menn hætti að leyfa sér þvílíkt tal um félagssamtök bændanna? Vonandi er þess ekki langt að bíða.
Stjórnarflokkarnir vita vel um andúð bænda gegn þessu máli og ýmsum öðrum stjórnarráðstöfunum. En stjórnarliðið veit líka, að það getur sagt 3 orð á móti hverju einu, sem andstæðingar þeirra tala í útvarpsumræðum frá Alþ. Af þessum og þessum ástæðum einum er stofnað til þeirra umr., sem nú fara fram, ef ske kynni, að stjórnarliðinu tækist að þyrla upp slíku moldviðri, að einhver bóndi missti sjónar á aðalatriðunum og hikaði í þeirri baráttu, sem nú er hafin af bændastéttinni gegn ráðstöfunum ríkisstj. En þetta er vonlaust verk. Þótt talsmenn ríkisstj. töluðu hér einir, mundi hlutur þeirra fara versnandi við hverja lotu. Aðalatriði þessa máls eru svo einföld, en samt svo þýðingarmikil, að þeim er ekki hægt að leyna. Bændur munu því halda þessari baráttu áfram. Í því sambandi er gott að minnast þess, að bændur standa ekki einangraðir og án samúðar í þeirri baráttu. Því fer fjarri, að almenningur utan bændastéttarinnar, t. d. í hópi verkamanna, sjómanna og útvegsmanna, sé hrifinn af því, hverjum tökum bændastéttin hefur verið tekin af stjórnarherrunum.
Fjöldi þessara manna skilur, að það er ekki hægt að leysa vandamál dýrtíðarinnar með því að ganga á rétt einnar stéttar. Það er ef til vill hægt að kaupa ríkisstj. líf með slíku í nokkra mánuði, en hin miklu vandamál verða ekki leyst með því móti. Fjöldi þessara manna skilur, að það er ekki verðlag landbúnaðarafurða eitt, sem er hátt, þótt það sé of lágt í hlutfalli við annað, heldur einnig kaupgjald og allt annað verðlag.
Reynt verður samt að telja sjávarútvegsmönnum t. d. trú um, að allir erfiðleikar stafi af verðlagningu landbúnaðarafurða, — og hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) reyndi það hér áðan, — og þess vegna sé jafnréttiskröfum bænda stefnt gegn þeim. Þess vegna megi sjávarútvegsmenn ekki styðja þann flokk, Framsfl., sem berst fyrir þeirra stefnu í dýrtíðarmálunum, af því hann berjist einnig fyrir jafnrétti bændastéttarinnar. En sá áróður rekur sig á það, að fjölmargir við sjávarsíðuna vita vel, að bændur landsins eru og verða beztu félagarnir í baráttunni gegn hinum sameiginlega óvini landbúnaðar og sjávarútvegs, — verðbólgunni. En auk þeirrar baráttu, þar sem menn úr ýmsum stéttum sameinast, eiga bændur landsins í stríði og hafa í þeirri viðureign samúð allra sanngjarnra manna, hvar í stétt sem þeir standa.
Barátta bændastéttarinnar gegn búnaðarráðslögunum, gegn fjötrum á búnaðarmálasjóði og gegn þeim öflum, sem eyða og koma fyrir kattarnef hverju framfaramáli, sem í nafni bændastéttarinnar er flutt og verulegu máli skiptir, er orðin að baráttu bændastéttarinnar fyrir félagslegu frelsi og baráttu fyrir jafnrétti hennar við aðra. Hún endar með sigri eða ósigri, ekki eftir því, hvað þeir menn segja, sem sitja nú yfir hennar hlut hér á Alþingi þjóðarinnar, heldur eftir því, hvernig bændur sjálfir halda á málum. Bændur hafa mótmælt þessum aðförum. Þeir standa saman um þau mótmæli og telja sér misboðið. Þeir hafa sagt A. Það er á þeirra valdi að segja einnig B. Það er á valdi bændastéttarinnar að koma í veg fyrir það, að nokkur þingmaður, sem stendur að þeirri meðferð á málefnum bænda, sem nú er viðhöfð, verði endurkosinn á þing í kjördæmum, þar sem bændur geta ráðið úrslitum.
Veruleg hreyfing í þessa átt mundi geta valdið straumhvörfum í stjórnmálum landsins. Það mundi standa glöggt fyrir mönnum á næstu árum, hvað það kostaði að ganga í berhögg við fjölmennustu stétt landsins á þann hátt, sem nú hefur verið gert. Verði hins vegar engin hreyfing í þessa átt, þá er kannske litlu betur farið en heima setið með sameiginleg mótmæli gegn ofbeldinu. Hvað halda menn þá, að slík mótmæli verði mikils metin næst? Hvað halda menn, að þeir, sem nú standa með hálfum hug að því, sem gert hefur verið, mundu telja sér óhætt að gera næst, ef þeir yrðu endurkosnir á þing af sumum þeim, sem nú eru algerlega mótfallnir því, sem nú hefur verið gert?
Bændur landsins standa á vegamótum. Annars vegar er leið innbyrðis sundrungar, deyfðar og misskilins umburðarlyndis, sem leiðir til þess, að á þeirra rétt verður gengið framvegis. Hins vegar er sú leið að snúa vörn í sókn og árásum andstæðinganna í flótta þeirra.
Liði stjórnarinnar er vel ljóst, hvað í húfi er. Það hafa raunar þessar umr. sýnt. Og þeir munu líka hafa sig alla við og nota alla nýtízku tækni í því sambandi. Ein aðferðin verður sú að rækta ágreining um einstök atriði, sem bændur greinir á um innbyrðis, t. d. það, hvernig stéttarsamtökum bænda skuli fyrir komið, eða um það, hvernig verja skuli fé búnaðarmálasjóðs. Þá mun verða reynt að draga athyglina frá því, sem nú er að gerast, með sífelldu tali um það, hvort réttmæt hafi verið sú ályktun, sem gerð var á búnaðarþingi í fyrra um verðlagsmál landbúnaðarins. Margar aðrar aðferðir munu verða reyndar. „Deildu og drottnaðu,“ sögðu Rómverjar. Kljúfa, — kljúfa bændastéttina er kjörorðið, sem allir þessir menn hugsa og breyta eftir, en segja ekki. Önnur aðferðin er sú að rógbera Framsfl., af því að þessum mönnum er það ljóst, að ekki er hægt að gjalda þeim svo sem þeir eiga skilið eða breyta hinu pólitíska viðhorfi svo um muni, nema með því að efla Framsfl. Það er og verður skírskotað til gamalla væringa og ágreiningsefna annars vegar og hins vegar til fornra tengsla við þann flokk, sem nú hefur forustuna um landbúnaðarstefnu ríkisstj., og til vináttu við ýmsa af forráðamönnum hans.
Enginn er alfullkominn, og eitthvað má að öllu finna. Og tæpast finnast tveir menn, sem eru sammála um allt. Þetta vita talsmenn klofningsins harla vel og munu reyna að notfæra sér það út í æsar. Nú reynir á að greina aðalmálefnin frá smærri málum. Nú reynir á það, hvort menn hafa þroska til þess að láta gamlar væringar víkja fyrir sameiginlegri nauðsyn. Takist nógu mörgum það, munu vopnin snúast í höndum stjórnarliðsins og bændastétt landsins koma sterkari og áhrifameiri út úr þessari raun en áður var. Ég vona, — nei ég veit að þetta tekst.