19.10.1945
Efri deild: 10. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (4908)
24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Flm. (Jónas Jónsson):
Þetta mál er nú alkunnugt mönnum í þessari hv. d., því að það var hér til umr. í sömu mynd s. l. vetur og afgr. til Nd., þar sem það hafði líka mikið fylgi. En þó varð niðurstaðan, að það náði ekki fram að ganga í það sinn. Ætla ég nú að segja fáein orð um málið, vegna þess að nokkurs misskilnings hefur gætt hjá sumum hv. þm. um það, að af þessum l. mundi stafa aukin útgjöld.
Það mun kannske verða síðar meir. En það er með þessi l. eins og önnur heimildarl., að þau koma ekki til framkvæmda fyrr en ríkið leggur fé til.
Ég vil þá fyrst minnast á það, að húsmæðraskólarnir eru bezt sóttir af öllum skólum landsins, engir samskólar hafa jafnmikla aðsókn. Og það er eftirtektarvert, — kannske ekki sízt í sambandi við önnur frv., sem hér eru borin fram og sagt er að mikill lærdómur standi að, án þess að ég vilji gera lítið úr lærdómnum, að húsmæðurnar sjálfar hafa skapað form sinna skóla, án þess að leita til löggjafans. Fyrst voru þetta einkaskólar, sem svo voru styrktir, bæði rekstur þeirra og byggingar. Um aðsókn að húsmæðraskólum má nefna, að í hinn byrjandi húsmæðraskóla í Skagafirði á eignarjörð forstöðukonunnar, Ingibjargar Jóhannsdóttur, er hægt að taka á móti í frekar ófullkomin húsakynni kannske 20 stúlkum. En umsóknir voru 100 í haust sem leið. Og þannig er þetta næstum alls staðar. Húnvetningar sækja um fyrir sínar dætur þremur árum fyrirfram. Á Laugum í Þingeyjarsýslu er venjulega hætt að taka á móti umsóknum, þegar komnar eru 70–80, annars mundu þær skipta hundruðum. En þetta er ekki bundið við neina sveit eða sýslu, þetta er almennt. Og það góða er, að íslenzkar konur hafa fundið það, hvernig þær vilja hafa menntun sína. Vil ég skjóta því til hæstv. landbrh., sem mun vera í uppsiglingu með stóran skóla í Skálholti, að ekki væri úr vegi viðvíkjandi honum og hinum bændaskólunum, að hann lærði nokkuð af kvenþjóðinni að hafa þessa skóla meir verklega og minna bóklega en verið hefur. Og það hefur verið viðurkennt í meðferð þessa frv. á Alþ. í fyrra, að þetta fyrirkomulag væri í samræmi við þarfir fólksins. Í þessari löggjöf er gert ráð fyrir því, að hver sýsla hafi einhverja slíka menntastofnun fyrir sig. Í Norður-Þingeyjarsýslu er gert ráð fyrir skóla nálægt Skinnastað, og hafa héraðsbúar safnað allmiklu fé í því skyni. Suður-Þingeyjarsýsla og Eyjafjörður hafa sína skóla fyrir, sem þó eru allt of litlir fyrir aðsóknina. Akureyri er nýlega búin að fá skóla, sem rúmar 48 stúlkur. Þá komum við að Skagafirði, og er gert ráð fyrir skóla í Varmahlíð eða þar í nánd. Er þar byrjaður einkaskóli, eins og ég gat um. Þá leggja Barðstrendingar áherzlu á að fá skóla á stofn á Reykhólum, en hefur þó aðallega verið talað um eins konar verklegan búnaðarskóla fyrir pilta. Þá hefur hv. þm. Snæf. komið með þá ósk, að Helgafell verði tekið í tölu þessara staða. Snæfellingar hafa enga slíka stofnun fyrir sig, en hafa hins vegar miklar mætur á Helgafelli. Er þarna vestra hafin fjársöfnun í þessu skyni. — Þá er komið að Skógum í Rangárvallasýslu. Þar er nú sama sem byrjað á skóla fyrir Rangæinga. Býst ég við, að þar gæti dregizt lengur en sums staðar annars staðar að byrja á húsmæðraskólanum, af því að Rangæingar mundu sennilega leggja stund á að ljúka við héraðsskólann. En samt eru skilyrði þar hin beztu. Ágætar aðstæður eru þar til rafmagnsnotkunar, og skólastaðurinn liggur prýðilega. Er gert ráð fyrir, að héraðsskólinn nái til Skaftfellinga og Rangæinga. Að síðustu er Kirkjubæjarklaustur, og kom sýslumaður Skaftfellinga með kröfu um þann stað inn í l. Er þetta að því leyti vel við eigandi, að þar er nú að myndast höfuðstaður fyrir sýsluna. Enginn stór skóli er þar. Raforka er þar mikil, og hafin er þar sjóðsstofnun.
Það má náttúrlega segja, að ekki liggi á að lögfesta þessa skóla, fyrr en menn beinlínis ætla að fara að byggja þá. En hins vegar vitum við, að kvenfólkið hefur, með aðstoð karlmannanna, verið oft nokkur ár að safna fé. En það er ekki hægt að gera á sama hátt, ef staðurinn er ekki lögfestur. Það hefði flýtt mikið fyrir Norður-Þingeyingum, ef það hefði verið í l., að Akur hjá Skinnastað yrði skólasetur. Það er þess vegna óhætt fyrir þm. að vera velviljaðir, vegna þess að kvenfólkið sýnir það í verki, að það kann að skapa þessa skóla og starfrækja þá og hefur áhuga fyrir því.
Enn fremur er svo þess að geta, sem væntanlega verður talað um í öðru sambandi, að í sumum þessum héruðum eru skólarnir í sveitunum hér um bil einu gististaðirnir, sem ferðafólk getur notað, innlent og útlent. Orlofslögin ná ekki tilgangi sínum fyrir bæjarfólkið, meðan ekki er völ á gististöðum meir en nú er. Er því aukaástæða að styðja málið þess vegna.
Mér þykir sennilegt, að gerðar verði till. um að bæta við fleiri stöðum, t. d. á Ströndum og í Austur-Skaftafellssýslu. Múlasýsla hefur Hallormsstað. Væri hugsanlegt, að Norðmýlingar vildu hafa sína stofnun fyrir sig. En mér þætti ekki ósennilegt, þó að það liggi ekki fyrir, að Múlasýslur í heild vildu heldur stækka Hallormsstað mjög mikið frá því, sem nú er, því að hann er þeirra sérstaki staður og liggur vel fyrir. Er því næstum landsnauðsyn, að svo verði gert, vegna þess að Austfirðinga vantar menntastofnun, sem hafi meira húsrými en Hallormsstaður hefur nú.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meir nú. Ég býst við, að frv. verði heldur stækkað en minnkað og verði að lokinni umr. vísað til menntmn.