30.11.1945
Efri deild: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í C-deild Alþingistíðinda. (4918)
24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Magnús Jónsson:
Ég hafði ekki veitt því eftirtekt, að hv. 2. þm. Árn. hafði frestað brtt. sinni til 3. umr., og ég get því að mestu leyti sparað mína ræðu. Þó að ég þekki ekkert til þeirrar konu, sem hefur stofnað þennan skóla, þá vildi ég aðeins segja það, að ég var á fundi, sem haldinn var þar fyrir skemmstu. Forstöðukonan var þá ekki heima, en ég hef sjaldan orðið eins hrifinn af að sjá umgengni eins og í þessum skóla. Allt var svo þokkalegt og listrænt mótað, að ég hef varla komið í húsnæði, þar sem það er eins áberandi. Fyrst er húsið mjög glæsilegt að utan, en þegar inn kemur, er varla nokkur hlutur, sem ekki er alveg sérmótaður, jafnvel stólarnir, og bök þeirra eru prýdd íslenzkum spakmælum. Það er einn og sami svipur eins og var í gömlu íslenzku baðstofunum, en þó er þetta alveg mátulega stælt til þess að það verði ekki að neinni heimsku. Það er alveg tízkustofa, björt og þægileg, en þó er formið þannig, að manni fannst sem maður væri í sveit á Íslandi, alls konar útsaum prýddi þar hvern hlut. — Ég vildi aðeins skýra frá þessu, áður en þessi till. kemur til athugunar, að hér er óvenjulegur starfskraftur á ferðinni, sérstaklega þegar það er athugað, að þessi kona hefur brotizt í þessu af litlum efnum og heldur litlum fjárstyrk, og ég álít ákaflega illa farið, ef ætti að fjölga húsmæðraskólunum, að slíkur starfskraftur fengi ekki að njóta sín í því að móta húsmæðraefni okkar. Ég veit ekki um það, hvort það kynni að vera vegna þessa skóla, en ég held það vel farið, að till. sé tekin aftur til 3. umr. Það eru viss skilyrði, sem uppfylla þarf um eignahald, stjórn skólans og annað slíkt, sem verður að athuga, enda býst ég við því, þó að þessi brtt. væri komin inn, þannig að húsmæðraskóli skyldi vera í Hveragerði, að þá væri það ekki sú skylda, að það yrði að vera, hvort sem það væri hægt eða ekki. Að sjálfsögðu yrði að vera samkomulag við núverandi eigendur stofnunarinnar, en það sýnist eftir húsmæðraskólalöggjöfinni, að skólarnir eigi að vera sjálfseignarstofnanir, eign héraða eða sýslufélaga. Það stendur meira að segja hér í frv.
Ég vil svo segja það almennt út af því, sem hefur verið talað um þetta launaspursmál, að ég held, að það mættu þá nokkuð margir skólar víkja á undan húsmæðraskólunum. Þetta eru þeir heilbrigðustu skólar fyrir helminginn af þjóðinni, og maður verður að undrast það, hvað þessir skólar hafa verið fáir. Allur þorrinn af skólum landsins er til undirbúnings ýmsu því, sem eftir eðli málsins verður starf okkar karlmannanna, af því að alltaf verður starf alls þorra kvenna að verða húsmæður, og er engin furða, þó að menn vakni til meðvitundar um það, að það þurfi fræðslu með að verða húsmóðir. Þó að ekki sé litið á þetta nema frá fjárhagshliðinni, þá er engin furða, þó að átakið sé stórt, þegar það byrjar. Þó að það sé gott að vita fótum sínum forráð, held ég samt, að það fari svo, að ekki verði hægt að skera við nögl fjárframlög, sem til þess fara.
Það liggur fyrir þinginu frv. um skólakerfi varðandi húsmæðrafræðsluna í landinu, en ég sé ekki, að samþykkt þessa frv. mundi á neinn hátt spilla fyrir því, þó að hitt frv. yrði á sínum tíma samþ. Ég hygg, að þessir staðir, sem hér eru nefndir, mundu allir falla inn í þau skilyrði, sem sett yrðu inn með þeim almennu l., og kemur fram í 2. gr. þeirra, hvaða skilyrði þarf til þess að húsmæðraskólar séu stofnaðir, og ég hygg, að allir þessir staðir mundu koma þar inn í.
Ég skal svo ekki lengja þetta frekar, en vil aðeins óska þess, að menn almennt líti vingjarnlega á þessa löggjöf og þá þörf, sem er hér óneitanlega á ferðinni.