11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (4925)

24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Frsm. (Jónas Jónsson) :

Herra forseti. Með þessum till. höfum við reynt að finna lausn á þessum vandamálum húsmæðraskólanna. Það ætti að geta orðið bráðabirgðalausn, og þar sem þetta verður bundið launal. þarf ekki að gera sérstaka ákvörðun á hverju þingi.

Það hefur komið í ljós, að nauðsynlegt er, að ríkið taki að sér rekstrarkostnað húsmæðraskólanna. Við leggjum til, að húsmæðraskólarnir fái ¾ rekstrarkostnaðar greidda úr ríkissjóði. Það getur verið, að menn vilji hafa einhverja minni tölu, og er hægt að athuga það. Nú er ekki rekinn búskapur nema við einn húsmæðraskólann, en þar, sem búskapur er rekinn, verður rekstrarkostnaður meiri.

Hv. 2. þm. Árn. og fleiri hafa fengið áhuga á, að fröken Árný Filippusdóttir fengi kennarastyrk og þannig betri aðstöðu en hún hefur haft við kennslustörf sín. Mundi sú ákvörðun látin gilda, meðan þessarar konu nýtur við. Þetta er mál, sem er erfitt viðfangs, þar sem tveir skólar eru í sömu sýslu. Þessi skóli fröken Árnýjar fær byggingarstyrk, og má allvel við una.