11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í C-deild Alþingistíðinda. (4926)

24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Kristinn Andrésson:

Herra forseti. Ég hef fylgt þessu frv. fram að þessu, og í fyrra kom fram svipað frv., sem samþykkt var í þessari deild: Við 2. umr. var blandað inn í frv. atriði varðandi launakjör við þessa skóla. Var óskað eftir, að menntmn. tæki málið til athugunar. N. gerði það og gat ekki orðið sammála um að fylgja fram komnum brtt. Minni hl. kemur fram með 2 brtt. Önnur þeirra er á þskj. 269 og er um það að bæta orðunum : „og í Hveragerði“ inn í 1. gr. frv: Ég geri ráð fyrir, að flestir nm. geti verið hliðhollir þessari till. eins og hún er orðuð.

Hins vegar hefur verið mælt með 2 brtt. á þskj. 296, en þeim getur meiri hl. n. ekki fylgt, og er það einkum af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess, að greiðslur eru teknar inn í frumvarpið.

Frá menntmn. Nd. kom frv. um húsmæðrakennslu. Þar eru ákveðnar reglur um, hvernig húsmæðraskólar skuli styrktir. Þar er gert ráð fyrir, að ríkið kosti laun kennaranna eins og við aðra skóla, en gert er ráð fyrir, að ríkið beri kostnaðinn að ¾, en héruðin að 1/4. Í brtt. er þessu hlutfalli snúið við. Meiri hl. er því mótfallinn, að þetta sé tekið inn í l., þar sem það er aðeins um suma húsmæðraskólana og annað gildir um þá almennt.

Í öðru lagi hefur meiri hl. ekki séð sér fært að taka afstöðu í samræmi við þessar fram komnu brtt. um greiðslu á rekstrarkostnaði skólanna. Eftir þessum till. voru aðrar reglur látnar gilda en felast í frv. Nd. Þar er lagt til, að ríkið beri 1/4, en héruðin ¾ kostnaðar. Minni hl. vill benda á búnaðarskólana til samanburðar og telur, að sama eigi að gilda um húsmæðraskólana.

Hvort ég felli mig við þetta frv., fer eftir því, hvort brtt. verður samþ. eða ekki. Ef seinni brtt. á þskj. 296 verður samþ., mun ég ekki geta fylgt þessu frv. og mun þá greiða atkv. á móti því, því að þá vildi ég heldur láta þetta mál bíða, þangað til ákveðið verður frekar um húsmæðraskólana almennt.