11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (4927)
24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum
Frsm. (Jónas Jónsson) :
Ég sé nú ekki, að ástæða sé til þess í sambandi við þetta mál að taka tillit til þess, þó eitthvert annað frv. sé lagt fyrir þingið. Og það er misskilningur hjá hv. frsm. meiri hl. n., að hér sé að ræða um aðra húsmæðraskóla en þá, sem hér eru nefndir. Því að viðkomandi bæði þeim húsmæðraskólum, sem búið er að byggja, og þeim, sem hér er stefnt með þessu frv. að því að löggilda, er það að segja, að það eru engar líkur til þess, að byggðir verði húsmæðraskólar annars staðar. En ákvæði þessa frv., ef samþ. verður, ná fyrst um sinn til allra húsmæðraskóla á landinu.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um fyrri brtt. frá minni hl. n., því að meiri hl. n. er nokkuð velviljaður þeirri brtt. En það leiðir af sjálfu sér, að ef þetta mál á að stöðvast af því, að það sé annað frv. á leiðinni um húsmæðraskólamál, þá fellur líka burt ákvæðið um rétt Árnýjar Filippusdóttur til kennaralauna, en með samþykkt þessarar brtt. væri aðstöðu hennar komið fyrir á nokkuð eðlilegan hátt.
Ég hygg, að það komi í ljós, að ekki verði hægt að komast af með minni rekstrarkostnað vegna skólanna en hér er talað um. Það er ekki vafi á því, að héruðin hafa yfirleitt enga sérstaka aðstöðu til þess í mörgum tilfellum að leggja á sig kostnað í þessu skyni. Til dæmis um það tek ég Hallormsstað. Fyrir skólanum þar hafa staðið menn úr tveimur sýslum, kvenfélög úr tveimur sýslum. En sýslurnar hafa enga ábyrgð á því. — Væntanlegur húsmæðraskóli á Reykhólum mundi ná til allra Vestfjarða, verða fyrir alla Vestfirði, og það væri mjög óþægilegt, ef Austur-Barðastrandarsýsla ætti að vera eins konar milliliður og innheimta fé til rekstrarkostnaðar skólans hjá mörgum héruðum. Og það mun reynast þannig, að þetta framlag, sem í öðru frv. er talað um til skólanna, að ríkið greiði aðeins ¼ hluta af rekstrarkostnaði þeirra, getur ekki staðizt, því að ef það væri ekki meira, mundu húsmæðraskólarnir leggjast niður.
Ég held, að það sé óhætt að samþ. þessa gr., því að þeir þm., sem vilja hafa húsmæðraskóla, sleppa aldrei billega frá því. Og hv. 7. landsk. þm. má sjálfum sér um kenna, þó að auka verði framlög til húsmæðraskóla, því að hann var með í því að hækka laun í fyrra. Og það kemur að litlu haldi, þó að kennslukonur yrðu hækkaðar upp í að hafa tólfföld laun á við það, sem áður var, ef skólarnir leggjast niður eða ekki er hægt að hita þá upp. Mér þætti gaman að sjá kennslukonu sitja með 25 þús. kr. laun og ekkert til þess að kynda skólana upp með og engin stúlka kæmi til skólanna. Þær sætu á eftirlaunum, að vísu með þakklætishug til hv. 7. landsk. þm. fyrir áhuga hans fyrir skólunum. En þær hefðu of lítið að gera samt.