11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í C-deild Alþingistíðinda. (4928)

24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Páll Hermannsson:

Herra forseti. Mér þykir vænt um, að rætt er um ástæður húsmæðraskólanna og bollalagt eitt og annað þeim viðkomandi. Því að það er mála sannast, að þessir skólar eru að stöðvast. Og ég er viss um, að hv. þdm. vildu ekki eiga þátt í því, að húsmæðraskólunum yfirleitt yrði lokað. Ég heyri, mér til ánægju, að það ber meira á því en fyrr, að hv. þm. a. m. k. viðurkenna, að menntun kvenþjóðarinnar sé ekki síður nauðsynleg en önnur viðleitni til að mennta borgarana.

Þegar lög um húsmæðrafræðslu í sveitum voru sett árið 1938, var gengið sæmilega frá fjármálagrundvelli skólanna, eftir þeim ástæðum, sem þá voru. Ég þykist hafa reynslu fyrir því, að þau fjárframlög, sem skólunum voru ætluð eftir þeim l. frá ríkinu að viðbættum dálitlum fjárfúlgum, sem féllu til heima í héruðum, frá sýslufélögum og úr fleiri áttum, gerðu þessum skólum kleift að starfa, ef þeir voru fullskipaðir. Ég gat þess við fyrri hluta þessarar umr., að þetta hefði smám saman breytzt til hins verra fyrir þessa skóla, vegna þess að sú almenna dýrtíð í landinu hefur aukizt meira en nemur vísitölunni. Vísitalan nær því ekki alveg enn að þrefalda fjárframlögin til skólanna á við það, sem þau voru 1938. En hin almenna dýrtíð hefur aukizt töluvert meira. Svo koma ofan á þetta launalögin. Um þau þarf kannske ekki sérstaklega að ræða, því að ég geri ráð fyrir, að ríkissjóður beri þann mismun, sem kostnaðurinn eykst vegna þeirra. En þar er um svo mikla breyt. að ræða, að maður trúir því varla. Það eru tólf sinnum hærri laun greidd við húsmæðraskólana nú en var 1938. Og nú þykist ég alveg vita, að án sérstakrar hjálpar geti húsmæðraskólarnir sumir ekki starfað lengur en til næsta vors. Og þá verða þeir að gera annaðhvort, að velta einhvern veginn áfram stórum rekstrarskuldum, sem myndazt hafa hjá þeim, eða selja svo eða svo mikið af eignum skólanna til þess að standa í skilum. Og þetta er óþolandi ástand fyrir alla, sem þurfa að koma nálægt skólunum. Það er ekkert skemmtilegt fyrir þá, sem kjörnir eru til að vera í skólaráði þessara skóla, að hanga með þá í lausu lofti og verða kannske vanskilamenn. Og það er ekkert skemmtilegt fyrir það opinbera að greiða meiri og minni fjárframlög til þeirra umfram það, sem skylt er, og jafnvel umfram það, sem leyfilegt er.

Ég skal ekkert um það segja, hvað rétt er um þá brtt., sem hér liggur fyrir. Hún væri mjög til bóta fyrir skólana sem bráðabirgðaráðstöfun. — Hitt, sem gert er ráð fyrir í lagafrv., sem fyrir þinginu liggur um húsmæðraskólana, að ríkið beri kennaralaun skólanna, en héruðin, sem skólarnir eru í, og ríki beri annan kostnað á fjárl., og þá ríkið ¼ hluta, en héruðin ¾ hluta, það væri miklu betra en það sem nú er, vegna þess að þá væri einhvers staðar aðgangur að því fé, sem skólarnir þurfa til þess að geta starfað. En ég tel það afturför frá því, sem gert var 1938. Það væri afturför fyrir skólana og héruðin, ef leggjast ætti á héruðin, sem skólar þessir eru í ¾ hlutar af rekstrarkostnaði skólanna öðrum en kennaralaunum, vegna þess að það er miklu meira en héruðin þurftu að láta af mörkum 1938, þegar lög um húsmæðraskóla í sveitum voru sett.

Annars álít ég langeðlilegast, að ríkið ræki algerlega húsmæðraskólana. Mér finnst húsmæðrafræðslan svo merkilegur þáttur í menntun borgaranna, að hún sé engu síður nauðsynleg en sú menntun, sem veitt er í bændaskólum. Og ef hugsað væri að láta þessa skóla að einhverju leyti bjargast af kennslugjöldum, þá hefur það fram að þessu verið ósanngirni í að láta konur greiða kennslugjöld, en ekki karla. Það má vera, að konur fari að hafa nú álíka miklar tekjur og karlar, ég veit það ekki. En fram að þessu hefur það ekki verið algengt.

Mér þykir fyrir, að hæstv. landbrh. er ekki viðstaddur þessar umr., af því að þessir skólar heyra undir hans starfssvið, og ég held, að það verði að taka einhverjar ákvarðanir um fjárframlög til þessara skóla, ef þeir eiga að geta starfað. En þó að hæstv. ráðh. sé ekki hér, tel ég samt gagn að því, að þessu sé hreyft hér og menn vakni til athugunar um það, að hér verður að einhverju að breyta til frá því, sem er. Því að ég fullyrði, að með þeim fjárframlögum, sem þessir skólar eiga rétt á að lögum, geta þeir ekki starfað.