11.12.1945
Efri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í C-deild Alþingistíðinda. (4929)

24. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Kristinn Andrésson:

Herra forseti. Ágreiningur er nú alls ekki um, hvort eigi að styrkja húsmæðraskólana eða ekki. Það er áreiðanlegt, að allir hv. þdm. eru sammála um að vilja styrkja húsmæðraskólana og sjá til þess, að þeir þurfi ekki að stöðvast vegna þess, að ekki sé séð fyrir rekstrarkostnaði þeirra. Meiri hl. menntmn. gerir aths. um það, að þetta ákvæði verði tekið inn í þetta frv., þegar fyrir þinginu liggur annað frv., sem ákveður alveg um húsmæðrafræðsluna og þar sem þessi ákvæði eiga heima, en alls ekki í frv. því, sem hér liggur fyrir. Og þeir hv. þm., sem láta sér svo annt um, að þetta ákvæði komi hér inn, þurfa ekki annað en biðja menntmn. að flýta fyrir afgreiðslu hins frv., sem liggur fyrir Alþ., og samþ. það svo. Og fram að þeim tíma fær menntmn. þessarar d. tækifæri til að fá betri upplýsingar um það, hvernig háttað er um húsmæðraskólana og rekstrarkostnað þeirra. Menntmn. hefur enn ekki fengið neinar ýtarlegar upplýsingar um það. Með till. þess frv. um húsmæðrafræðslu er gert ráð fyrir því, að ríkið taki að sér allan kostnað við kennsluna og enn fremur greiðslu á ¼ hluta af rekstrarkostnaði skólanna. Hv. 1. þm. N.-M. taldi, að það væri bót frá því, sem nú er, en ekki nægilegt til þess að standa undir rekstrarkostnaði skólanna. Ef svo er ekki og þetta er rétt hjá hv. 1. þm. N.-M., þá liggur beint við að breyta ákvæðinu um þetta í frv. um húsmæðrafræðslu og finna þann hluta, sem réttmætt er og nægilegt gæti orðið að ríkið greiddi til þess að tryggja tilveru þessara skóla. Það er því síður en svo af óvild til þessara skóla að ég legg til, að málum þeirra verði skipað með ákvæðum þess frv., sem ég gat um, en ekki liggur nú fyrir til umr., né heldur af því, að ágreiningur eigi sér stað um það, að styrkja beri þá nægilega til þess að þeir geti starfað, að við erum á móti þessum brtt., heldur viljum við, að þær séu bornar fram við það almenna frv. um húsmæðrafræðslu, sem efalaust mun verða afgr. á þessu þingi, ef hv. þm., sem standa að minni hl. brtt., vilja styðja okkur að framgangi þess frv. Og ég er mjög hissa á því, þegar það frv. er fram komið, að menn skuli leggja svo mikið kapp á að koma fram þessari brtt. við þetta frv. Auk þess mætti benda á það, að brtt. á þskj. 296 er ákaflega einkennilega orðuð, því að í 2. brtt. er tvenns konar viðmiðun. Og ég skil ekki, hvað á að þýða að setja inn í þessi l. viðmiðun um tilkostnað ríkisins við bændaskóla landsins. Um þetta segir svo í brtt., með leyfi hæstv. forseta: „Framlag ríkisins til rekstrar skólanna miðast við það, að hver húsmæðraskóli fái í rekstrarkostnað fyrir hverja námsmey sem svarar 75% af tilkostnaði ríkisins við hvern nemanda í bændaskólum landsins árið áður, enda séu þar dregin frá öll kennaralaun.“ Mér finnst þetta ákaflega einkennilegt orðalag á þessari brtt. og mjög óþarft. Ef ákveða á hlutfall rekstrarkostnaðar, sem ríkið greiði til húsmæðraskólanna, þá er auðvitað beinast, að það sé beinlínis ákveðið án allrar viðmiðunar við einhverja aðra skóla. Mér finnst m. a. af þessari ástæðu mjög óeðlilegt að samþ. þessa brtt. hér óbreytta. En ég vildi mælast til þess, að hv. minni hl. menntmn. tæki þessa brtt. aftur og léti bíða að taka ákvörðun um þetta atriði, þangað til frv. um húsmæðraskóla liggur fyrir til meðferðar. Og ég skal lýsa yfir því fyrir mína hönd, að ég er reiðubúinn til að taka til endurskoðunar það hlutfall, sem þar er gert ráð fyrir um það, að ríkið kosti aðeins ¼ af rekstrarkostnaði (JJ: Við yfirgefum ekki kvenfólkið). Það er svo langt frá því, að meiri hl. n. vilji frekar yfirgefa kvenfólkið. Við viljum aðeins ákveða styrk til húsmæðraskólanna þann stað í l., þar sem ákvæði um hann eiga heima. Vænti ég þess því, að þegar kemur að hinu frv. um húsmæðrafræðslu og afgreiðslu þess hér í hv. d., hljótum við stuðning frá hv. minni hl. n. til þess.