08.03.1946
Efri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í C-deild Alþingistíðinda. (4952)

33. mál, jarðræktarlög

Landbrh. (Pétur Magnússon) :

Eins og d. er kunnugt, hefur það skeð, að allmikill lagabálkur hefur verið lagður fram í Nd. Það frv. er nú í athugun í landbn. neðri deildar. Það fjallar að nokkru leyti um sama, mál og þetta frv., og ef það yrði að l., þá mundi það marka mjög mikið spor í ræktunarsögu landsins. Nú eru ekki skiptar skoðanir um það, að keppa beri að því sem fyrst að fullrækta landið. En á þessu frv., eins og raunar hinu líka, álít ég að sé sá galli, að það er ekki bent á leið til þess að afla fjár til að standa undir þeim mikla kostnaði, sem af þessu leiðir. Ég fyrir mitt leyti hef ekkert við það að athuga, að þetta frv. nái fram að ganga gegnum þessa d., og færi það þá væntanlega eftir það til Nd., sem mundi athuga það í sambandi við þann lagabálk, sem Nd. hefur nú þegar til athugunar. Ég get því fyrir mitt leyti mælt með því, að frv. fái afgreiðslu hér í d. og fái síðan athugun í hv. neðri deild.