03.12.1945
Efri deild: 43. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (496)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Eins og hv. þdm. er kunnugt, er þetta frv., sem hér liggur fyrir, staðfesting á brbl., sem sett voru á s. l. sumri. — Þetta frv. hefur nú náð samþykki hv. Nd., og voru útvarpsumr. um það við 3. umr, í þeirri hv. d. Mun hv. þdm. því málið kunnugt, enda hefur það verið rætt hér í hv. d. í sambandi við umr. um annað mál. Ég mun því ekki hefja umr. um þetta mál nú við 1. um., en leyfi mér að gera það að till. minni, að því verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. landbn.