03.12.1945
Efri deild: 43. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Það er satt, sem hæstv. ráðh. sagði, að öllum dm. mun þetta mál kunnugt, og hefur verið töluvert rætt, m. a. við útvarpsumr. í hv. Nd. Ég veit því, að það muni ekki hafa neina þýðingu að fjölyrða um það hér, sízt við 1. umr., og sjálfsagt ekki við neina umr., því að það mun ekki vera meiningin að taka brtt. til greina, a. m. k. ef þær koma frá stjórnarandstöðunni. Ég ætla þá ekki heldur að fara að innleiða umr. um þetta mál hér. Ég ætla aðeins að taka það fram þegar, að ég lít á þetta mál sem hreinasta ofbeldisverk, fyrst og fremst ofbeldisverk gagnvart bændastétt landsins, sem nú hefur svo að segja einróma mótmælt þessum l., og mér er sterkur grunur á því, — og það er að sumu leyti alvarlegra mál, — að það sé ofbeldisverk gagnvart hreint og beint meiri hluta Alþ., að þetta mál er keyrt í gegn. Það er beint yfirlýst af einum stuðningsmanni þessarar hæstv. ríkisstj., hv. þm., sem sæti á í Nd., að hann sé mótfallinn þessu máli, þó að hann vegna afstöðu sinnar til ríkisstj. sæi sér ekki fært að greiða atkv. á móti því. Ég er alveg sannfærður um, að allur flokkur þessa hv. þm., sem ég gat um, lítur eins á málið. Öðruvísi getur það ekki verið. Það er með öllu óhugsandi, að nokkur maður, sem kallar sig sósíal-demókrata, geti raunverulega álitið rétt að samþ. l. sem þessi. Hvað snertir afstöðu Sósfl., sem saman stendur að mestu leyti af kommúnistum, er aftur á móti ekki gott að segja, því að afstaða hans er svo breytileg og fer eftir því, sem hann álítur heppilegustu leiðina til þess að ná sínu marki, svo að ekki er hægt að fullyrða um það, nema þeir hv. þm., sem þeim flokki fylgja, kunni að samþ. þetta frv. með glöðu geði, hitt er hægt að fullyrða, að það gerir enginn af þm. Alþfl., enginn af þm. Framsfl, og enginn af þeim þm. Sjálfstfl., sem kallaðir hafa verið fimmmenningarnir. Er þá kominn meiri hl. þ., sem áreiðanlega er á móti þessu máli. Ég sé, að hv. 3. landsk. er að skrifa niður hjá sér. Vitanlega ber hann á móti þessu, en það mun ekki svara kostnaði, því að það er gefið mál, að ef hann greiðir atkv. með þessu, þá gerir hann það móti sannfæringu sinni. Menn, sem kölluðu það þrælalög, l. eins og gerðardómsl., sem sett voru 1942 og voru aðeins um það að lögbjóða kaup, sem hlutaðeigendur höfðu sjálfir samið um, þeir geta ekki litið öðruvísi á þetta frv., ef að 1. verður, en sem þrælal., sem eru ekki um það að lögbjóða það verð, sem bændur hafa sjálfir sett eða samið um, heldur er í raun og veru verið að lögbjóða það verð, sem einn maður getur ráðið. — Í útvarpsræðu frá hv. Nd., sem ég hlustaði á, var mikið rætt um það, hvaða afleiðingar þessi lagasetning hefði haft í haust. Ég ætla að ganga alveg fram hjá því atriði. Það er miklu meira virði, hvað þessi l. boða fyrir framtíðina og hvaða fordæmi þau gefa, heldur en það, hvernig þau hafa reynzt nú í haust. Blaðið Íslendingur á Akureyri, sem er ákveðið stuðningsblað hæstv. ríkisstj., sagði í ritstjórnargrein, þegar þessi brbl. voru sett, að ekki væri hægt að neita því, að l. væru töluvert einræðiskennd. Hins vegar taldi blaðið, að öllu væri óhætt, sökum þess að Pétur Magnússon væri landbrh. og að honum væri vel treystandi til þess að fara með þessi mál með sanngirni, og þó að ég sé stjórnarandstæðingur, þá get ég vel viðurkennt það, að maður gæti komizt í landbrh. sæti, sem færi verr með þetta geysilega vald en núv. hæstv. landbrh. hefur gert. L. segja hins vegar ekkert um það, að þau séu tímabundin, og það er framtíðin í þessum efnum, sem ég fyrir mitt leyti óttast mest. Þeirri fjarstæðu er haldið hér fram, að með þessum l. sé valdið yfir verðlagningu landbúnaðarafurða fengið bændum í hendur, af því að bændur séu í búnaðarráði, en það hljóta allir að sjá, að þar sem ráðh. skipar menn í búnaðarráð, hefur hann í hendi sinni á hverjum tíma að skipa þá menn, sem láta að vilja hans. Valdið í slíkum málum er ekki í höndum annarra en þeirra, sem velja mennina til þess að fara með málefnin. Það hljóta allir að viðurkenna. Hæstv. landbrh. viðurkenndi þetta, er hann sagði í útvarpsræðu sinni í hv. Nd., að meðan greiðslur færu fram úr ríkissjóði til þess að halda niðri verðlagi landbúnaðarafurða, gæti ríkisstj. ekki sleppt þessum málum úr sinni umsjá með öllu. En þó að þessi l., sem hér um ræðir, hefðu ekki verið sett, hefðu verðlagsl. gilt áfram, og hefði ríkisstj. ekki þurft að sleppa hendi sinni af þessum málum, þar sem hún hafði það á valdi sínu að skipa formann verðlagsn., og þá var valdinu yfir þessum málum svo háttað, að það var eins konar samkomulag milli bænda og neytenda, en síðan skipaði ríkisstj. oddamann n. Og það er alltaf munur á því að hafa þar fulltrúa til þess að tala þar sínu máli, þó að ekki sé meiri hlutinn, heldur en að hafa engan. Bændur hafa í þessu landbúnaðarráði engan fulltrúa, því að það eru fulltrúar ráðh., sem um er að ræða. — Ég ætla ekki að orðlengja þetta, veit, að það þýðir ekki, og hef ekki neina löngun til þess að tefja þingið, en mér finnst, að á minni töluvert löngu þingsetu, sem orðin er, hafi aldrei legið fyrir nein lagasetning, sem eins minnir á einræðisfyrirkomulag og sú, sem hér liggur fyrir. Ég hélt í lengstu lög, að þó að hæstv. ríkisstj. hefði þótt hagkvæmt að setja þessi brbl. í haust, hefði ætlunin ekki verið sú að láta samþ. þau nú á Alþ. og láta þau gilda í framtíðinni, heldur sú að fá aðra sanngjarnari skipan þessara mála. Það kann að vera, að þetta verði enn, þó að brbl. liggi fyrir seinni d., en mér er þó farið að lítast þannig á, að þetta muni eiga að samþykkja. En slík verk sem þessi hefur reynslan sýnt, bæði hér á landi og annars staðar, að borga sig ekki fyrir þá, sem þau vinna.