06.03.1946
Neðri deild: 81. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í C-deild Alþingistíðinda. (4992)

53. mál, verkfræðingar, húsameistarar, iðnfræðingar

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Herra forseti. Þetta frv. hefur komið til allshn. þessarar hv. d., en hafði áður verið í hv. Ed. og var flutt þar af allshn. Sú n. sendi málið til umsagnar Verkfræðingafélagi Íslands, og umsögn þess félags birtist í nál. frá Ed. á þskj. 276.

Það eru tvær breyt., sem í þessu frv. felast. Í 1. gr. er breyt. í því fólgin, að orðið „ingeniör“ falli burt, sem átti að vera sem þýðing á íslenzka orðinu verkfræðingur. En þetta hefur hins vegar orðið þess valdandi, að menn, sem hafa útskrifazt og fengið prófskírteini sem „ingeniörar“ samkvæmt þessum l., hafa ekki haft leyfi til að nota það hér. Verkfræðingafélagið fellst á það í sínu svari að fella þetta orð burtu úr 1. gr. l., og allshn. beggja d. hafa fallizt á það. En brtt., sem í frv. greinir, er að efni til það, að í l. eins og þau voru 1937 var veitt heimild til þess að veita þeim mönnum, sem höfðu stundað verkfræðistörf í 6 ár áður en l. gengu í gildi, leyfi til þess að kalla sig verkfræðinga. Félagið Tækni, en í því eru ýmsir þeirra manna, sem hafa þessa fagkunnáttu, en ekki uppfylla þessi skilyrði, fór fram á, að þessu yrði breytt, og frv. var flutt, eins og segir í grg., fyrir þeirra beiðni. Allshn. Ed. gerði brtt. við 1. gr. frv., eins og sést á þskj. 276, og er hún að efni til hin sama og frvgr., að það er hægt að fengnum meðmælum stéttarfélags verkfræðinga hér á landi að veita þeim mönnum, sem stundað höfðu verkfræðistörf fyrir 13. júní 1937, leyfi til að kalla sig verkfræðinga, enda þótt þeir fullnægi ekki prófskilyrðum þeim, sem um ræðir í 1. mgr. þessarar gr. Það er sem sé um það, að þeir hafi lokið prófi í verkfræði við tekniskan háskóla, sem stéttarfélag verkfræðinga hér viðurkennir, og mér skilst, að þeir aðilar, sem hér eiga hlut að máli og fóru upphaflega fram á flutning frv., felli sig við þessa breyt. Allshn. Nd. hefur athugað frv. og mælir með því, að það verði samþ. að þessu leyti til óbreytt. Það hefur komið fram á þskj. 495 brtt. frá hv. þm. Mýr., og þær eru í því fólgnar, að í stað þess, að samkv. 2., 4. og 6. gr. l. er það stéttarfélag viðkomandi aðila, sem ákveður um það, hvort telja megi þann skóla, sem maður útskrifaðist frá, fullgildan skóla, þá verði það Háskóli Íslands, sem ákveði um þetta. Þessi brtt. hefur verið lögð fyrir allshn., að vísu voru ekki allir nm. mættir, en n. féllst á, að það væri eðlilegt, að það væri háskólinn, sem skyldi meta það, hvort viðkomandi erlendir skólar, sem útskrifa verkfræðinga, húsameistara og iðnfræðinga, hvort slíkir skólar uppfylli þessi skilyrði eða ekki. Það væri eðlilegra en að stéttarfélag verkfræðinga sem slíkt ákvæði um þetta, og það er náttúrlega þeim mun frekari ástæða til þess að fallast á það nú en 1937, þegar l. voru sett, vegna þess að nú starfar við háskólann verkfræðingadeild. Háskólinn hefur þess vegna innan sinna vébanda fagþekkingu, og að þessu leyti er því eðlilegra, að háskólinn meti þetta frekar en stéttarfélag sem slíkt. Allshn. vill þess vegna mæla með því, að þessi brtt. á þskj. 495 verði samþ.

Ég vil svo að síðustu geta þess, að það hefði verið athugandi, hvort ekki hefði átt að breyta 4. gr. l., ákvæðinu þar sem segir, að mönnum sé heimilt að kalla sig húsameistara að fengnu leyfi stéttarfélags húsameistara, ef þeir hafi stundað húsameistarastörf eigi skemur en 6 ár áður en l. þessi tóku gildi. N. hefur ekki flutt brtt. um þetta, en það kemur af því, að það hafa ekki komið fram neinar raddir um það frá þessum aðila, stéttarfélagi húsameistara, að l. yrði breytt til samræmis við það, sem félagið Tækni hefur farið fram á. En hefðu komið fram raddir um þetta og færð rök að því, að þetta væri réttlátt, hefði n. ekkert haft á móti þessu. En hún taldi óþarft að vera að taka það upp hjá sjálfri sér, úr því að þetta ákvæði virtist ekki brjóta í bág við hagsmuni þeirra manna, sem þar áttu annars hlut að máli.