07.03.1946
Efri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (501)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson) :

Herra forseti. Nál. meiri hl. landbn. um frv. er nú satt að segja harla stutt, en þó ákveðið að því leyti, að því fylgja engar skýringar af hálfu meiri hl., þar sem lagt er til, að frv. verði samþ. óbreytt, að öðru leyti en því, að endurskoðun fari fram á l. fyrir næstu árslok.

Ég get látið hér staðar numið, þó að þessi brtt. sé ekki svo lítil, en það er búið að ræða þetta mál svo mikið í Nd., að ég álít hvorki Alþ. né málinu sjálfu til yfirlitsauka né sæmdar, að hér sé talað um það með breyttu orðalagi. Þessi breyt. meiri hl. landbn. er gerð með það fyrir augum, þar eð þetta er annars vegar mikið hagsmunamál framleiðenda og neytenda og hins vegar hefur staðið um það mikill styr, að þá séu, ef málin hafa eitthvað skýrzt, þegar líður á árið, opnaðar dyr til samkomulags, þannig að allsherjar sættum mætti koma á um þessar aðferðir. Öllum þingheimi er um það kunnugt, að nefndarskipun sú, er ákveðin var með brbl. þeim, sem hér um ræðir, sætti mikilli mótspyrnu hjá andstæðingum þessa frv., og vildu þeir leggja málið beint fyrir bændasamtökin. Ég tala þar beint frá eigin brjósti, að ef samtök bænda yrðu á sínum tíma þess umkomin að verðskulda það að hafa ein úrskurðarvald um slíkt verðlag, þá álít ég þau vel að því komin. En ég álít, að þessi brbl. hafi einnig sitt sér til réttlætingar, því að mér finnst ekki því að leyna, að þó að ópólitísk samtök bænda færu með svona mál, þá eru þau því miður mjög óþroskuð enn þá. Ég vildi hins vegar einskis frekar óska en þau kæmust á það þroskastig að vera pólitísk einungis í þeim skilningi, að þetta væri þeirra pólitík, óháð landsmálum að öðru leyti. Og ég vildi óska þess, að sá ágreiningur, sem hér hefur verið, hyrfi með öllu og allir sæju, að bændastéttin ætti þetta að pólitísku þrifnaðarmáli.

Mér finnst það vera orð, sem á fyllsta rétt á sér í brtt. á þskj. 511, að l. skuli endurskoðast fyrir árslok 1946. En ég sé, að á þskj. 520 hefur hv. þm. Dal. borið fram brtt., þar sem hann vill, að l. falli úr gildi 1. sept. 1946. Mér finnst nú ekki fara mikið á milli brtt. n. og hv. þm. Dal. Að vísu getur hann hengt hatt sinn á það, að 1. sept. falli núverandi verðlag úr gildi og önnur l. komi í staðinn. En ég spyr: Ef Alþ., verður ekki komið saman til þess að ákveða um þetta, er þá mikið í húfi? Nei, það er ekki mikið í húfi. Ég verð svo djarfur að segja: Eru hundrað í hættunni, þó að hið sama gilti nú? Ég svara nei. En þetta horfir auðvitað allt öðruvísi við, ef þarna væru að verki menn, sem væna mætti um einhliða stuðning t. d. við neytendur. Þá væri þetta allt annað mál. En nú er það ekki svo. Annað mál er svo það, hvort á að lögfesta þetta skipulag til frambúðar. Mér finnst ekki ástæða til þess, ef bændasamtökin verða ekki svo vanþroska eins og þau eru enn þá.

Nú er það líka svo, að þar sem hv. þm. Dal. í sínu minnihlutanál. á þskj. 520 vill slá þessu föstu, að 1. falli úr gildi 1. sept. 1946, þá eru gildar ástæður til að ætla að það valdi vandkvæðum og jafnvel vandræðum. Við skulum segja, að það þætti ekki ástæða til að kveðja vegna annarra málefna Alþingi saman svo fljótt. Þá gæti farið svo, að með þessari samþykkt, svona löguðu ákvæði, yrði sagt að gera það. Og þá finnst mér með brtt. stefnt að því að setja ekki undir svo mikinn leka, að það svari kostnaði að setja undir hann, því að það er ekkert skipulagsleysi, sem á sér stað, heldur full skipun í bili, sem að vísu hefur sætt ágreiningi, en ég tel eins og málum er háttað um flesta trúnaðarmennina, að þeir séu beint úr bændastéttinni sjálfri til atfylgis í þágu framleiðendanna og þá neytendanna líka, þangað til annað yrði gert í samræmi við áskilda endurskoðun miðað við brtt. í nál. okkar meiri hl. n.

Út af nál. hv. 1. þm. N.-M. á þskj. 523, sem er hinn annar minni hl. landbn., þarf ég engum orðum að eyða. Hann leggur til, að frv. verði fellt, og gengur að því leyti hreint og skýlaust fram og ég geri ráð fyrir á líkan hátt og hefur komið fram af hálfu sumra manna í Nd., að hann er á móti því, að frv. nái samþykki, og eins og ég tók fram í byrjun máls míns hér, þá álít ég það vera bara til að eyða tíma að fara að eyða mörgum orðum um málsástæður, því að það pex er þegar orðið óeðlilega mikið, og ég verð svo djarfur að segja, að það er meira flokkslegt kapp, sem þar kemur til greina, heldur en að málefnið sjálft sé látið sitja í fyrirrúmi. Ég vil þannig ekki fara frekar út í þetta eða ræða þetta mál, heldur gera mitt til þess að vekja ekki kappdeilur um málefni, sem er margbúið að kappdeila um í Nd. og eyða til þess langtum meiri tíma þar en ástæða er til, ekki af því að málið verðskuldi ekki alla athygli, af því að það er mikilsvert í sjálfu sér, heldur af því, að kappið hefur að sumu leyti verið meira en forsjáin.

Það er sem sagt till. meiri hl. landbn., að frv. verði samþ. eins og það nú liggur fyrir með þessari lítils háttar breyt., að við 11. gr. bætist, að l. skuli endurskoðuð fyrir næstu áramót.