15.11.1945
Efri deild: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (5018)
75. mál, æskulýðshöll í Reykjavík
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Eins og sést á nál. á þskj. 139, hef ég skrifað undir það með fyrirvara. Þessi fyrirvari minn gildir þó á engan hátt það, að ég vilji ekki fylgja þessu máli eða að ég vilji setja fótinn fyrir það á nokkurn hátt. Frv. er nú borið fram í þeirri mynd, sem það var samþ. hér í hv. d. í fyrra. Í fyrstunni var það borið fram á nokkurn annan hátt en það var samþ., þó að þar væri ekki stórvægilegur munur á, og þær breyt., sem gerðar voru á frv. í fyrra, gengu einmitt í þá átt, sem ég óskaði. Þess vegna er það, að þó að ég hafi skrifað undir nál. með fyrirvara, þá gildir það á engan hátt málið eins og það liggur hér fyrir. En það er víðar æskulýður en í Reykjavík. Og þó að ég viðurkenni það fúslega, að þörfin muni vera mest hér í Reykjavík til þeirra aðgerða, sem frv. gerir ráð fyrir, þá kynni þó að vera ástæða til fyrir ríkið að styðja svipaðar framkvæmdir víðar á landinu vegna æskulýðsins. Og fyrirvari minn gildir þá það, að ég vil áskilja mér allan rétt til þess að styðja slíkar till., ef fram kynnu að koma, annaðhvort sem sjálfstæðar till. eða þótt þær væru sem brtt. við þetta frv.
Fleira hef ég ekki fram að taka. Ég mun að sjálfsögðu fylgja frv.