07.03.1946
Efri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (502)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Frsm. 1. minni hl. (Þorsteinn Þorsteinsson) :

Ég ætla ekki að fara að byrja mál mitt um þetta frv. á því að fara að ásaka hæstv. ríkisstj. út af því frv. eða réttara sagt þeim bráðabirgðal., sem hér liggja fyrir. Það má ýmislegt segja um það, eins og líka sagt hefur verið, en eins og þá var í pottinn búið, þegar l. voru gefin út, bráðabirgðal., sem frv. er alveg sniðið eftir, þá má deila um það, hvort það hafi verið annars úrkosta fyrir hæstv. landbrh. en að fara þá leið eða svipaða leið og hann fór í málinu þá, en sem sagt, um þessa hluti, sem nú eru liðnir, sé ég ekki ástæðu til að deila, það verður að hlíta við það, sem orðið er, fram eftir árinu. En ég er sannfærður um það, að hæstv. landbrh. hefði, ef komið hefði verið rækilega og vel skipulagt stéttarfélag hjá bændum, sem hefði náð yfir alla bændastéttina, skipað landbúnaðarráð talsvert á annan hátt en nú varð. Nú er viðhorfið þannig, að fram undan er það, að áður en næsta sumar er liðið og haustið kemur, að stofnað verði öflugt stéttarfélag meðal bænda og að það verði búið að skipa sér stj., sem verður forsvarsmaður þess og þá virðist mér horfa talsvert öðruvísi við, og það er trú mín, að þá muni ekki verða, svo framarlega sem ekki verða landbúnaðarráðherraskipti, á móti hugsun hæstv. landbrh. að taka tillit til þess ráðs, og ég hygg það og tel það sjálfsagt að óreyndu, að hann mundi láta það hafa meiri áhrif á val þeirra manna, sem kæmu til með að skipuleggja afurðasöluna á næsta ári. Nú er því þannig farið, að við vitum ekki um það, hvort þingið kemur saman fyrir 1. sept. n. k., og mér skildist á hv. frsm. meiri hl., að þá sæi hann þess engin ráð að framkvæma neitt öðruvísi en þetta frv. leggur fyrir. En jafnvel þó að þing væri ekki kallað saman, þá sé ég ekki, að það væru neinir erfiðleikar, því að ef annað bregzt, þá má á ný gefa út bráðabirgðal., sem væru þá sniðin eftir þeim ástæðum og aðstöðu allri, sem þá lægi fyrir, og mér þykir það líklegt, að ýmislegt geti breytzt til þess tíma. En eigi maður að bíða með endurskoðun þessara laga fram til áramóta, er alveg slegið föstu um kjötverð a. m. k. á næsta ári, eða fram til 1. sept. 1947, og um mjólkurverð líka að nokkru leyti, og ég býst við, að það verði höfð sama aðferð og verið hefur um ákvörðun verðsins, og því er það, að ég tel réttast að láta þessi l. ekki gilda nema þetta eina ár, sem að sjálfsögðu er nauðsynlegt, úr því sem komið er, og síðan verði önnur skipun höfð á þessum málum, eftir því sem þá horfir við fyrir þjóð og land að beztu manna yfirsýn: Ég tel það, að þessir biðmánuðir, sem hv. frsm. kallaði það þetta endurskoðunartímabil, gildi í þessu tilfelli, þó að þeir séu ekki nema 2–3, sama og 12 mánuðir. Þess vegna sýnist mér varla koma til mála að draga endurskoðun þessara 1. fram yfir 1. sept., heldur á þá að vera búið að ljúka þeim störfum, á hvaða hátt sem það verður. Það getur vel farið þannig, að þing verði kallað saman ekki síðar en í ágústmánuði, — það er allt á hverfanda hveli. En ef ekki, þá verður hæstv. stj. að taka til annarra ráða. Og hvernig sem um það fer, þá treysti ég því og trúi, að við næstu verðlagningu verði meira tillit tekið til stéttarfélags bænda, sem þá verður komið, heldur en hefur verið tekið til félagsskapar bænda síðast, enda var hann þá ekki orðinn skipulagður sérstaklega um stéttarhagsmuni eða markaðshagsmuni bændastéttarinnar, en frekar miðað við annað, þar sem var Búnaðarfélag Íslands og búnaðarþing, og meira miðað við ræktunarmál heldur en afurðasölu. Ég vænti þess yfirleitt, að þessi till. fái góðar undirtektir og hv. þm. fylgi mér að málum og samþ. hana.