07.03.1946
Efri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Herra forseti. Ég er mönnum sammála, að tilgangslaust er að hefja hér miklar umræður. Mál þetta hefur verið rætt ýtarlega í Nd. og einnig hér í hv. deild í sambandi við annað mál. Það yrði því mest endurtekning á því, sem áður hefur verið sagt. Ég kvaddi mér hljóðs til að gera grein fyrir afstöðu minni til brtt. á þskj. 511 og 520. Ég vil geta þess, að brtt. á þskj. 511 er flutt í samráði við mig og mun ég greiða henni atkv. Ég fellst á hana, því að ef svo færi, að hætt yrði að greiða niður landbúnaðarvörur, þá er nauðsynlegt að taka til endurskoðunar löggjöf þessa. Þess vegna sýnist æskilegast, að löggjöf þessi skuli endurskoðuð á næsta þingi. En ég get ekki fallizt á brtt. á þskj. 520, þar sem lagt er til, að löggjöfin falli úr gildi 1. sept 1946. Það er augljóst, að fyrir 1. sept. n. k. verður ekki úr því skorið, hvernig málum þessum skuli skipað í framtíðinni. Það verður aðeins til að skapa þeirri stjórn, er situr þá, nýja örðugleika og neyðir hana til að setja ný brbl. Ef sama stjórn situr þá, má gera ráð fyrir, að sett yrðu hin sömu ákvæði og eru í frv. þessu, og yrði það því óþarfa endurtekning. Þess vegna vænti ég, að hv. deild felli þá brtt:

Út af ræðu hv. 1. þm. N.-M. vil ég segja það, að hann hleypur yfir og minnist ekki á eitt mikilvægt atriði í þessu sambandi. En það eru þau ákvæði, er áður giltu í þessu efni. Hv. þm., sá góði og greindi maður, veit það að með þeim ákvæðum, sem í gildi voru, hafði stjórnin miklu meiri tök á að ráða verði landbúnaðarafurða en með brbl., sem sett voru s. l. haust. Stjórnin gat áður með því að ráða einn mann séð um, hvernig verðlagningin yrði á þessum vörum. Það er algerlega rangt að segja, að stjórnin hafi aukið vald sitt með brbl., — þvert á móti hefur hún afsalað sér völdum yfir til fjölmenns hóps manna, sem vill, að hagur landbúnaðarins verði sem beztur. Samkv. l. má aðeins skipa þá, sem reka landbúnað. (BSt: Þó aðeins sjálfstæðismenn og komma). Þótt sjálfstæðismenn hafi meiri þroska en flokksbræður þessa hv. þm., þá verð ég að segja það, að mér kemur það kynlega fyrir sjónir, er ég heyri hv. 1. þm. N.-M. endurtaka þá fjarstæðu, að með þessum ákvæðum sé verið að niðurlægja bændastéttina og verið sé að setja hana skör lægra en aðrar stéttir í þjóðfélaginu. Þetta er í hæsta máta óviðurkvæmilegt: Bændastéttin hefur nú miklu sterkari aðstöðu en nokkur önnur stétt. Ætli iðnaðarmenn yrðu ekki harla ánægðir, ef iðnaðarmálaráðh. tilnefndi 25 manna ráð úr iðnaðarstéttinni til að ákveða verð iðnvara? Heldur þessi hv. þm., að verzlunarstéttin mundi ekki una vel, ef hún fengi hið sama? Og ætli það mundi ekki hýrna yfir sjómönnunum, ef atvmrh. skipaði ráð úr hópi þeirra til að ákveða verð á sjávarafurðum innanlands? Væri verið að misbjóða þessum stéttum? Nei — þær mundu áreiðanlega þakka fyrir það, ef þær nytu þannig sömu réttinda og bændurnir. Það undrar mig, að þessir sömu þm., sem greitt hafa atkv. með gömlu lögunum, þar sem verðið var ekki í höndum bænda, skuli nú ráðast á þá stjórn, sem veitir bændum miklu meira vald til að ráða verðlagi afurða sinna en þeir hafa nokkurn tíma haft áður, a. m. k. s. l. 10 ár. Meðan til greina kemur að greiða niður landbúnaðarafurðir úr ríkissjóði, kemur ekki til mála, að stjórnin hafi ekki einhverja hönd í bagga um verðlag afurðanna.

Um tilnefningu mannanna í búnaðarráðið fer ég ekki að ræða, en jafnvel andstæðingarnir hafa játað, að yfirleitt hafi tilnefningin vel tekizt, og óhætt er að fullyrða, að almenn ánægja ríki yfir því verðlagi, sem ákveðið var á s. 1. hausti. Raunar hafa verið gerðar tilraunir til að gera þessa menn tortryggilega, en það mun ekki ofmælt, að þeir hafi ratað meðalhófið mjög vel. — Mun ég svo ekki fjölyrða um þetta mál, nema sérstakt tilefni gefist.