19.02.1946
Efri deild: 67. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (5048)
88. mál, útsvör
Frsm. (Steingrímur Aðalsteinsson) :
Herra forseti. Ég held, að það sé út af fyrir sig ekki rétt hjá hv. flm., þegar hann talar um það, að það sé óeðlileg afgreiðsla að afgreiða frv. eins og hér er lagt til. Ég held þegar n. afgreiddi málið, þá hafi þessi afgreiðsla ekki verið óeðlileg. Þá lágu fyrir upplýsingar um það, að verið væri að vinna að heildarendurskoðun útsvarslaganna. En nú hefur það verið upplýst á fundinum, að sú vinna, sem þar er gerð, kemur ekki til með að ná til þess atriðis, sem hér um ræðir. Mér skilst, að hæstv. félmrh. ætli ekki að láta framkvæma þá heildarendurskoðun, sem n. hélt að yrði gerð, og taldi því ekki ástæðu til að gera sérstakar ráðstafanir þetta varðandi af hálfu Alþ. Þess vegna skilst mér að málið hafi tekið nokkrum breytingum síðan n. gaf út sitt álit, en það er dags. 3. des. Með tilliti til þessa get ég fyrir mitt leyti fallizt á ósk hv. flm., að umr. þessari verði frestað og n. taki málið til athugunar á ný, vegna þeirra upplýsinga, sem hér hafa komið fram. Og vænti ég, að hv. form. n. muni einnig vilja það. (BBen: Ég get vel fallizt á það.) Um efnishlið frv. sé ég ekki ástæðu til að ræða á þessu stigi, en n. hefur ekki tekið afstöðu til þess. En sú hlið liggur þá fyrir við frekari athugun málsins í n.