19.11.1945
Efri deild: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (5066)
90. mál, tónmenntadeild Laugaskóla
Flm. (Jónas Jónsson):
Það hefur verið unnið að því í héraðsskólunum að koma upp kennslu í sérgreinum, einkum í verklegum efnum, en er þó ekki nóg enn gert í því efni. Þetta er í samræmi við breyt. þær, sem gerðar voru á héraðsskólal. 1939. Nú hefur skólan. Laugaskóla og kennarar áhuga á, að komið verði upp deild við skólann fyrir það fólk, sem ekki hefur efni né tíma til að ganga í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þetta er útskýrt í grg. frv. og því fylgir vottorð frá Páli Ísólfssyni, Helga Elíassyni, fræðslumálastjóra og Sigurgeir Sigurðssyni biskupi. Það hefði verið hugsanlegt að bera fram breyt. á l. um skólann, en það þótti réttara að flytja um þetta sérstakt frv. og vita, hvað þingið segði um þetta.
Ég álít, að ekki þurfi að fjölyrða um þetta, og ég vil leggja til, að frv. verði vísað til menntmn. að lokinni þessari umr.