03.12.1945
Efri deild: 43. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (5110)

127. mál, lögreglustjóri á Dalvík

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Ég er hæstv. dómsmrh. þakklátur fyrir það, að hann tók vel í það, sem ég hafði varpað hér fram, að það þyrfti að fara fram endurskoðun á því kerfi, hvernig landinu er skipt í einstök sveitarfélög og bæi. Á hinn bóginn álít ég, að ekki beri nauðsyn til þess að láta þetta mál bíða eftir því, að slík endurskoðun hafi fram farið, Ég get sem sagt ekki hugsað mér annað en að sú endurskoðun hljóti að leiða til þess, að kauptún með þeirri íbúatölu, sem Dalvík hefur, sem mun vera um 700 manns, fái fastan starfsmann til þess að sinna sínum málum. Ég held, að það komi ekki annað til greina, jafnvel þó að slík endurskoðun færi fram.

Hæstv. dómsmrh. drap á það, að það væri í raun og veru hreppstjórastörf og lögreglustjórastörf, sem ríkið þyrfti að sjá um, en sveitirnar sjálfar oddvitastörf, og þetta er rétt, og það er ekki ætlazt til annars hér en að kauptúnið greiði fyrir oddvitastörf, sem það þarf að láta vinna fyrir sig. Ég get alveg fallizt á þetta. Og ég álít mjög óheppilegt, þegar svo hefur farið, sem mun hafa komið fyrir, að þegar lögreglustjóri hefur verið skipaður í kauptún á þennan hátt, þá hefur kannske ekki líkað við hann eftir nokkurn tíma, og hann hefur ekki verið látinn hafa oddvitastörf með höndum. Þetta álít ég ákaflega óheppilegt, vegna þess að þá næst ekki nema að nokkru leyti sá tilgangur, sem er með því að skipa lögreglustjóra í þessi kauptún, því að tilgangurinn er, að sá maður geti gefið sig að málefnum kauptúnsins með óskiptum kröftum. Og þegar svona fellur, koma sömu vandræðin til um oddvita, að þá verður að taka einhvern borgara til þess að hafa oddvitastörf með höndum, en þau eyða miklum tíma frá hans aðalstarfi, og þetta leiðir til vandræða. Ég væri alveg fús til þess að fallast á, að lögreglustjórinn skyldi hafa oddvitastörf með höndum, og að til þess þyrfti hreppsnefnd ekki sérstaklega að óska þess, heldur væri það beinlínis ákveðið. En þá yrði það auðvitað að vera eins og til er tekið í frv., að það mætti ekki skipa annan lögreglustjóra en þann, sem hreppsnefndin féllist á, ef svo ætti að vera. Og eins og ég sagði áðan, er ég líka mjög fús til að fallast á þá breyt., að hæfileg þóknun fyrir oddvitastörf dragist frá þeirri upphæð, sem ríkið á að greiða, m. ö. o., að þessi maður hafi samtals þau laun, sem launal. ákveða lögreglustjórum í kauptúnum, og það skiptist svo á milli ríkissjóðs og kauptúnsins að greiða honum launin. eftir hæfilegum hlutföllum, sem ég tel, að mundu þá vera þannig, að kauptúnið greiði þessum manni oddvitalaun alveg eins og aðrir hreppar, sem er ákveðið gjald fyrir hvern tug hreppsbúa, eins og menn vita, auk þess sem þeir fá innheimtulaun af útsvörum. — Ég vil þess vegna vona það, þó að ég taki algerlega undir orð hæstv. ráðh. um, að flýta þurfi endurskoðun á þessum málum, — og ég skal gjarnan hreyfa því í allshn. þessarar d., hvort hún vill ekki hafa forgöngu í því að beina því til ríkisstj. — ég vil vona það, að menn fallist á þá nauðsyn, sem ég tel á, að þetta frv. gangi fram, vegna þess, eins og ég hef skýrt, að ég býst við fullkomnum vandræðum, út af því a fá þessi störf unnin, ef menn eiga að hafa þau í hjáverkum.