22.03.1946
Efri deild: 90. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (5117)

196. mál, fyrningarsjóður ríkisins

Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég var ekki viðstaddur við 1. umr, þessa máls, og því miður hefur fjhn. ekki ennþá getað tekið það til meðferðar. En það er hvort tveggja, að málið er einfalt, og ég býst við, að þingmenn séu því yfirleitt fylgjandi, og þar sem nú er orðið áliðið þings, þá tel ég æskilegt, að það haldi nú áfram, og sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál, enda geri ég ráð fyrir því, að hæstv. fjmrh. hafi fylgt því úr hlaði.

Undanfarið hefur það verið venja við afskrift fasteigna ríkissjóðs að færa fyrningarupphæðina til gjalda á rekstrarreikningi viðkomandi stofnunar og lækka fasteignina í verði um sömu upphæð. Var þetta gert til þess að undirbyggja efnahagsreikning. En hér er gert ráð fyrir, að fyrningarupphæðin færist áfram á rekstrarreikning, en verði greidd í sérstakan sjóð, sem hafi það hlutverk að endurbyggja fasteignina. Þetta er hentugt, og þótt það kosti ríkið talsvert reikningslega, þá er ríkið með þessu að létta undir með sjálfu sér. Og þótt sjóðurinn sé ekki stór til að byrja með, þá mun hann, þegar fram í sækir, verða hin mesta stoð og mun brátt safnast fjárupphæð, sem hægt verður að lána til nýrra bygginga. Er þetta ekki ólíkt hinum almenna kirknasjóði, sem kirkjur geta fengið lán úr til bygginga og endurbóta. Ég held, að þetta geti varla orkað tvímælis, því að þótt þetta kosti dálítið, þá fer þetta fé bara úr einum vasanum í annan og er því eins konar vátryggingargjald.

Ég skal svo ekki fjölyrða meira um þetta, en skal sjá um, að það verði tekið fyrir á fjárhagsnefndarfundi, og teldi ég nú heppilegt, að það gæti gengið til 3. umr.