12.03.1946
Efri deild: 82. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (512)

5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)

Haraldur Guðmundsson:

Það má ekki minna vera en ég svari fyrir sjálfan mig svo einbeittum áskorunum sem hv. 1. þm. Eyf. hefur beint til mín. Þá er einnig skylt og sjálfsagt að þakka þá sérstöku umhyggju, sem hv. þm. ber fyrir Alþfl. (BSt: Ég hef gert það alltaf). Já, hv. þm. kveðst raunar alltaf hafa gert það, en ég hygg þó, að stundum hafi mistök orðið á því, en ég skal ekki rekja það hér. — Ég mun nú svara áskorun. hans, en það hef ég þó þegar að sumu leyti gert, en mun þó drepa hér á nokkur atriði til viðbótar. Ég kem þá að kaflanum um hreinskilnina, en þar get ég verið stuttorður. Ég taldi það kost á frv., að það viðurkennir, að úrslitavaldið væri í höndum ráðherra. Ég sagði enn fremur, að þetta væri eðlilegt, eins og málum er nú háttað, þar sem ríkið greiðir 2/5 hluta af söluverði varanna til bænda. En hv. þm. gleymdi að taka það fram, að hér er enginn verulegur munur á því, að valdið var og er í höndum ráðherra. Hér er þetta viðurkennt í frv. (BSt: Hefur landbrh. viðurkennt þetta?) Það þarf ekki að spyrja neinn um það, því að þetta er staðreynd. Hv. þm. taldi erfitt að sanna, að 1 maður af 5 gæti ráðið eins miklu og 25 skipaðir menn. Hann lék sér að því að sanna, að 2=2+1=1, og þetta sannaði hann mjög í allri ræðu sinni. Í þessu atriði og einmitt þegar mestu máli skipti, þá féllu atkv. þannig, — þegar fulltrúa bænda og neytenda greindi á, þá var úrslitavaldið hjá oddamanni, sem var skipaður af ráðherra. Munurinn er því ekki fjarska mikill frá því, sem var og er, — hann er miklu meir í orði en á borði. Það er í rauninni miklu betra að hafa ákvæði laganna augljós. — Hv. þm. spurði, hvers vegna ætti að beita bændur svona sérstökum ráðstöfunum. Það hefur einmitt verið bent á það, að það er ekki verið að beita bændur neinum sérstökum ráðstöfunum. Allar stéttir verða að hlíta meira og minna ströngum fyrirmælum um verðlag, hvað þá heldur þar sem ríkið greiðir beint uppbót á afurðir bænda. Hér þarf að setja glögg og skýr ákvæði. Sá, sem selur fisk, verður að selja fyrir ákveðið verð, og nú er meira að segja farið að greiða með fiskinum. Hv. 1. þm. Eyf. spurði líka, hvort frumorsök dýrtíðarinnar lægi hjá bændum, þar sem horfið hefði verið að því að greiða niður afurðir þeirra. Það er erfitt að svara þessu til fulls nema í löngu máli. En vissulega væri tilefnið nægilegt, þar sem þessi hv. þm. og flokksmenn hans eru sífellt að stagast á því, að þeir séu hinir einu réttu menn, er sífellt séu að berjast gegn dýrtíðinni. Það má minna þá á það og spyrja: Hver var fyrsta verðhækkunin hér innanlands, og hver kom skriðunni af stað? Fyrsta skrefið var stigið, er flutningagjöldin hækkuðu gífurlega í stríðsbyrjun. Það er óafsakanlegt, er við alþm. reyndum ekki að sporna neitt við. En samtímis þessu hélt verðlagið áfram að hækka, og afurðir bænda hækkuðu mjög á meðan kaupgjaldið var bundið að lögum, og var það ekki nema 20–30 stig, en landbúnaðarafurðir hækkuðu um 70–80 stig. Ég segi ekki, að þetta sé frumorsök dýrtíðarinnar, en þetta var fyrsta stóra skrefið til að hleypa henni af stað. Á þessu ber fyrst og fremst ábyrgð þessi hv. þm. og Framsfl., en ekki bændur. (BSt: Vorum við í meiri hluta á þingi?). Þótt það hafi ekki verið, þá er frumkvæðið að rekja til Framsfl., og fékk hann síðan stuðning annarra. Þessa sögu mætti rekja lengur, en ég hygg, að nú sé nóg, enda mundi hlutur Framsóknar ekki batna við það.

Hv. þm. sagði í lok ræðu sinnar, að menn hlytu að greiða atkv. gegn þessu frv., ef þeir vildu láta hina sósíal-demókratisku birtu halda áfram að skína inn um glugga sína. Við skulum sleppa öllum orðaleik, en ég vil segja það skýrt, að Alþfl. mun sem heild greiða atkv. með þessu frv. En við lítum ekki þannig á, að með þessu sé hin eina rétta úrlausn málanna fengin, en það er bót frá því, sem áður var, og hana verðum við að notast við, þar til heildarbreyting verður gerð. — Það mun vera rétt, að hæstv. forseti Nd. tók ekki þátt í afgreiðslu málsins, en þetta sannar aðeins það, að Alþfl. handjárnar ekki sína menn. (BSt: Hann kemur ekki handjárnum á þennan mann). Hv. þm. má hafa það, hvernig sem hann vill, en annars væri bezt fyrir hann að halda sér við sinn eigin flokk.

Það er óþarfi hjá hv. þm. að vera að ógna Alþfl., þótt hann veiti aðstoð sína þessu frv. og stuðli að því, að það verði að lögum. — Heyr á endemi! Hverjir settu gerðardómslögin? Þetta er ekkert nýtt hjá þessum hv. þm. og flokki hans. — Ég vildi óska, að hugarfarsbreyting yrði hjá þessum mönnum.

Hvað bændur snertir, þá vil ég benda þm. á, að ekki er hægt að taka til samanburðar verkamenn í bæjum, það er ekkert til samanburðar, því að hér er um tvo aðila að ræða, annars vegar atvinnurekendur, sem kaupa vinnu, hins vegar verkafólk, sem selur vinnu sína. — Löggjöfin hefur afskipti af vinnudeilum og verkföllum og segir fyrir um, hvernig þau eigi að ganga, svo að þjóðfélaginu stafi af sem minnst hætta. Svona er eðlilegt, að málin séu, þó að ég viðurkenni, að á óróatímum þurfi að setja um það strangari lög, en því er nú ekki til að dreifa hér. Um verðlagningu landbúnaðarafurða er ekki um neina tvo aðila að ræða. Sá hluti kjötsins, sem er umfram kr. 6,80 nú, er beinlínis greiddur úr ríkissjóði. Ég finn hvergi hliðstæður í þessu. Kr. 10.80 er verðið, sem borgað er fyrir kjötið. Til þess að hægt sé að selja það, er það greitt niður. Ég vil minna hv. 1. þm. N.-M. á, að ég spurði hann um daginn, hvort kjötið mundi seljast jafnt, ef það væri ekki greitt niður. Hann svaraði þá, og var það fremur mælt af karlmennsku en fyrirhyggju. — Ég vil svo segja hv. þm., að hótanir hans hafa engin áhrif á mig.