05.04.1946
Efri deild: 100. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í C-deild Alþingistíðinda. (5131)
209. mál, loðdýrarækt
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Það eru ekki komnar í mínar hendur brtt. þær, sem landbn. gerði við frv. þetta, en verið er af útbýta þeim nú í deildinni. Það eru aðeins tvær brtt., sem þar liggja fyrir, og er önnur við 3. gr. frv. Í þessari 3. gr, stendur, að öll loðdýr skuli flutt á milli garða í öruggu búri. En í brtt. þessari er lagt. til, að þegar loðdýr eru flutt, skuli ávallt flytja þau í öruggu búri, þannig, að þó að þau séu flutt annað en á milli garða, t. d. frá skipsfjöl til verustaðar síns, verður það alltaf að fara fram í öruggu búri.
Hin brtt. frá okkur mun vera við 6. gr. frv. og er aðeins viðbót, sem felld er inn í 4. málsgr. 6 gr., þannig, að ef ráðunautur merkir sjálfur loðdýr, þá skal ákveðið um greiðslur fyrir það í reglugerð, og greiðsla sú, sem þar er ákveðin, verður innheimt og greidd í ríkissjóð.
Það er eitt atriði, sem kom til mála, að nefndin flytti brtt. við, af því að ráðunauturinn var hálfóánægður með það, eins og það stendur hér í þessu frumvarpi. Er það viðvíkjandi 5. gr., þar sem stendur, að ráðherra gefi út erindisbréf handa ráðunaut, „og skal þar m. a. svo ákveðið“, stendur í frv. En ráðunauturinn vildi hafa þetta þannig, að heimilt væri að ákveða þetta í erindisbréfinu. En n. gat ekki orðið sammála um að flytja þá brtt., og var því horfið frá því ráði, enda virðist þetta ekki skipta mjög miklu máli.
Ég legg nú til fyrir hönd n., að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem landbn. hefur orðið sammála um að leggja til, að gerðar verði.