21.02.1946
Sameinað þing: 28. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 494 í D-deild Alþingistíðinda. (5180)
82. mál, veiting héraðsdómaraembætta
Flm. (Gísli Sveinsson) :
Áður en ég hef mál mitt fyrir alvöru, vildi ég spyrjast fyrir um það, hvort hæstv. dómsmrh. hafi ekki gert orð, að hann mundi verða viðstaddur umr. þessa. (Forseti: Ráðh. hefur ekki boðað nein forföll, en annars er hægt að fresta umr., ef flm. óskar). En væri hægt að skyggnast um eftir hæstv. ráðh., ef hann væri hér innan húss. (Forseti: Svo skal gert. — Sú orðsending hefur borizt frá hæstv. dómsmrh., að hann telur sig ekki geta verið viðstaddan umr. nú). — Herra forseti. Það hefur í rauninni ekki neina úrslitaþýðingu, hvort hæstv. ráðh. sé viðstaddur eða ekki. Það er miklu meira formsatriði. Hér er um almennt mál að ræða, sem snert getur alla þá dómsmrh., sem verða munu í náinni framtíð, og vel er hugsandi, að það muni þá einnig geta snert einhverja þá, er nú hlýða á mál mitt. Þannig er ástatt, að hér á enginn einn sök á né um sárt að binda, heldur er mál þetta almenns eðlis. Þessi till. kom hér fram á þ. fyrir jólin, og vænti ég, að hún geti fengið skjótan og góðan framgang. Till. felur ekki í sér annað en það, að ríkisstj. er falið að undirbúa löggjöf um veiting héraðsdómaraembætta, og er þetta nánar sagt í grg. og gerist ekki þörf að endurtaka það hér. Menn kannast fúslega við það, að veiting slíkra embætta er algerlega á valdi ríkisstj. Þó má segja, að svo sé ekki um ýmis önnur embætti, t. d. héraðsdámaraembætti. Á síðari árum hefur komizt upp, ef svo má segja, nefnd til ráðuneytis ríkisstj. Þar hafa átt sæti hlutvandir aðilar, eins og stjórn Læknafélagsins o. fl., sem ríkisstj. hefur ekki getað gengið fram hjá. Hún hefur einmitt farið eftir till. hinna beztu manna um þetta efni, þótt auðvitað geti þar komið til greina einhver flokkapólitík, því að menn hafa alltaf sínar misjöfnu skoðanir á landsmálum. En með því að hafa álit hæfra nefnda til hliðsjónar er miklu síður hætt við hlutdrægni en hjá einstökum pólitískum ráðh. Í okkar lýðræðisríki er það nú svo, að hinir pólitísku ráðh. eru engan veginn óvilhallir. En þótt það verði raunar erfitt að sigla algerlega fyrir það, þá er sjálfsagt að reyna að girða fyrir alla hlutdrægni eftir megni og að fara fremur eftir hæfileikum mannanna en pólitískum skoðunum. Enn er eitt atriði, sem er mikilvægt, en það er embættisaldurinn. Sumir tala raunar um það, að ekkert tillit beri að taka til embættisaldurs, en þetta er hin mesta firra. Sérstaklega er embættisaldur mikilvægur við t. d. dómaraembætti. Auk þess sem störf þessi eru þannig vaxin, verður reynslan ólygnust um hæfni þessara manna til að rækja þau.
Tilefnið til þess, að hér er riðið á vaðið um undirbúning löggjafar um veiting héraðsdómaraembætta — og það þarf ekki að fara neitt dult með það — er það, að allmikill glundroði hefur ríkt hjá veitingarvaldinu um veiting þessara embætta og engin sjáanleg regla virðist hafa verið höfð til hliðsjónar, og útkoman hefur orðið sú, að menn hafa gagnrýnt sumar embættaveitingar og talið þær óviðeigandi. Nú er ekki hægt að ásaka neinn sérstakan ráðh. fremur en annan, heldur má víst öllu fremur segja, að allir hinir pólitísku ráðh. hafa syndgað í þessum efnum. Svona hlutdrægni virðist nú vera að gegnsýra allt þjóðfélag vort. Allir sjá, að slík stefna er óhæf. Öll siðspilling er í rauninni eyðileggjandi, öll siðspilling mun hefna sín um síðir. Og í annan stað kemur það niður á þeim störfum, sem unnin eru. Störf eru misjafnlega af hendi leyst eftir hæfni mannanna. Allur almenningur kann því illa, að ekki séu valdir hinir beztu menn, sem völ er á, í embætti. Og að lokum gæti svo farið, að úrvalsmenn vildu ekki leggja sig undir slíkan dóm. Menn geta verið misjafnlega undirbúnir, hafa lagt sig misjafnlega fram. Af þessu sést, að mikið er í húfi. Þess vegna hefur Félag héraðsdómara látið sig mál þetta miklu varða. Fyrir 5 árum, eða 1941, samþykkti félagið gagngerða ályktun, þar sem stjórninni var falið að gera gangskör að því að koma á einhverri reglu um veiting héraðsdómaraembætta svo sem auglýsa embættin, taka tillit til menntunar, reynslu og síðast en ekki sízt embættisaldursins, því að hann hefur ætíð mikið gildi. Auk embættisgildis hefur hann starfsgildi, reynslugildi og einnig siðferðilegt gildi. Nú kveður raunar nokkuð að því, að embættismenn vorir sumir hverjir vilja ógjarnan leggja á sig mikið erfiði, heldur sitja í ró og makindum. Auðvitað er þetta ekki neitt glæsilegt. En eftir að stjórn Félags héraðsdómara samþykkti fyrrgreinda ályktun sína bólaði ekki á því, að ríkisstj. tæki sig til og fylgdi einhverjum reglum. Árlega eru embætti veitt og engri reglu fylgt, heldur er allt látið ráðast af handahófi. Og ekki kemur ósjaldan fyrir, að pólitíkin ráði einhverju um. Það er ekki þar með sagt, að slíkar embættaveitingar geti ekki reynzt vel, það fer skiljanlega mest eftir mönnunum sjálfum. Þó að stundum hafi kannske verið slampazt á rétta manninn, þá er hitt víst, að bezt væri og ekki sízt fyrir stjórnarvöldin, að fylgt yrði einhverri ákveðinni og fastri reglu, þá yrði ekki hnýtt í ráðh, fyrir rangar eða flausturslegar embættaveitingar. — En fyrrgreind ályktun fékk enga úrlausn í reyndinni. Þess vegna var þetta endurtekið á aðalfundi héraðsdómara nú í sumar og farið fram á, að sett yrði löggjöf um þetta efni. Ætlazt var til, að ríkisstj. stæði fyrir því með aðstoð löggjafarvaldsins frekar en einstakir þm. Sem sé, í ályktuninni var þess vænzt, að ríkisstj. skærist í málið og Alþ. setti lög og reglur hér að lútandi. Hér fylgdi vissulega hugur máli. Lagt var til, að ráðh. fengi ráðgefandi n. eða ráðuneyti, sem yrði kosið eða skipað úr stétt lögfræðinga. Heppilegt þótti, að leitað yrði tillagna þar til kjörinnar n., sem 3 menn ættu sæti í, og væri einn kjörinn af héraðsdómurum, annar af hæstarétti og hinn þriðji af lagadeild háskólans. Þessi skipting er álitin í alla staði bezt og öruggust. Einn maður skal koma úr stjórn Félags héraðsdómara. Þeir vita manna bezt um starf héraðsdómara og annað, er að því lýtur. Í öðru lagi skal vera maður úr hópi hæstaréttardómara. Ætti hann að vera vel dómbær um hæfni umsækjenda, því að til hæstaréttar fara allir hinir vafasömu dómar. Hinn þriðji skal svo vera úr kennaraliði lagadeildar háskólans. Þá deild hafa allir dómarar gengið í gegnum. — Að sjálfsögðu kveður misjafnlega mikið að hlutdrægni í embættaveitingum eftir því, hver í hlut á. Þess vegna ætti hverjum ráðh. að vera mikill akkur í að hafa einhverjar reglur til þess að fara eftir. Af þessum sökum er till. þessi borin fram og fylgir með allýtarleg grg. og vil ég ekki endurtaka það, sem í henni felst, en þar er farið fram á, að sett verði löggjöf um veiting héraðsdómaraembætta, og bent á, hvernig hún muni bezt vera.
Að mínum dómi virðist mér óþarfi að vísa málinu til n. Hins vegar mun ég ekki setja mig á móti því, ef þm. æskja þess. En ég legg áherzlu á það, að hæstv. Alþ. samþ. till. þessa.