13.03.1946
Efri deild: 83. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (522)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Hermann Jónasson:
Ég ætla aðeins að gera örstutta aths. og skal hafa orðin fá. — Úr því að við hv. 3. landsk. erum farnir að ræða dýrtíðarmálin á annað borð, þá vildi ég segja það, að ég er ekki í neinum vafa um, að ummæli hv. þm. stafa af því, að hann finnur til sektar, og hann veit, að sá tími er skammt undan, að þjóðin fer að skilja, að verðfestingarlögin voru ekki framkvæmanleg. En gerðardómslögin voru hin einu réttu lög, sbr. afstöðu verkalýðsins, og var það ógæfan meiri, að Alþfl. reis upp gegn þeim og gekk á band annarra flokka.
T. d. um það, hvað dýrtíðin skiptir miklu máli, þá hefur formaður húsaleigunefndar upplýst, að eftir mati n. verða menn að greiða 9–10 þús. kr. á ári fyrir 2 herbergi og eldhús. Enn fremur kvað hann menn þurfa að greiða í það a. m. k. hluta af árstekjum sínum. — Það er engin furða, þótt hv. 3. landsk. sé órólegur yfir því, að l. komu ekki til framkvæmda. Hann veit of vel, hver dómur honum er búinn.
Verkamenn fara að skilja, hvernig málum er komið. Það hefði þótt tíðindum sæta, ef árið 1942 hefði áskorun komið til stj. frá verklýðsfélagi í fyrrv. kjördæmi hv. 3. landsk. um að fara að lækka dýrtíðina og hætta þessu kapphlaupi, sbr. stöðvunarlögin 1941. En þessi áskorun kom.
Það, að Framsfl. eigi sinn þátt í hækkun dýrtíðarinnar, og ásakanir á hendur honum af því tilefni, er eðlilegt framhald af öðru, sem eins og þetta er í blekkingaskyni gert. Eru allar þessar aðdróttanir hreinn þvættingur, svo og hitt, að kjötverðið hafi hækkað 1941. En hvers vegna má á hinn bóginn kjötverðið eigi hækka til samræmingar við annað verð? Því áttu bændur að draga sig til baka? Máttu þeir ekki setja upp það verð, sem þeir gátu fengið á erlendum markaði? Herinn keypti mikið af kjöti, og bændur urðu að taka því, er að þeim var rétt.
Svo er það mjólkin. Hún er greinilega á eftir að verðlagi til. Reiknað var út í byrjun des.mánaðar 1941, hve mikil verðhækkun mjólkur skyldi vera. Hvað hefur síðan komið í ljós? Það hefur sýnt sig, að mjólkurhækkunin 1941 var í nákvæmlegu samræmi við sex manna nefndar álitið. Hún var rétt. Hverjir reiknuðu svo út þetta verð. Sá embættismaður, sem á hér hlut að máli, er hagstofustjóri. Aðrir? Tveir menn voru líka frá verkamönnum, Alþýðusambandinu. Og þeir töldu, að bændur ættu að fá þetta, og yrði verðlag þeirra í samræmi við það, sem þeir reiknuðu út skv. sex manna nefndar álitinu.
Framsfl. hefur aldrei tekið þátt í þessu kapphlaupi. Hann bauð, sem kunnugt er, upp á stöðvun 1941 og '42, en því var ekki anzað. — Sú stjórnarstefna, sem tekin var upp vorið 1942, að brjóta gerðardómslögin á bak aftur, er sú stefna, sem. ber ábyrgðina á núverandi ástandi, en Framsfl. kom þar hvergi nálægt.
Hægara er að uppfylla þær kröfur, sem hv. þm. Barð. lætur uppi um að koma fjármálunum í það horf, er var, áður en núverandi stjórnarlið tók höndum saman, og ættu hvorki hann né aðrir að klína hækkun dýrtíðarinnar og núverandi stjórnarstefnu á Framsfl., sem hefur engan þátt tekið í þessu:
Ég skal svo ekki þreyta hæstv. forseta með frekari orðalengingum um þessi efni.