13.03.1946
Efri deild: 83. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (523)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Gísli Jónsson:
Ég skal líka vera stuttorður. — Mér er sönn ánægja að því að fá yfirlýsingu hv. þm. Str. um hækkun kjötverðs 1941. — En svo er það bara hitt, að verkamenn vildu eigi sætta sig við launalækkanir. Þeir kröfðust þess líka að fá þá hækkun á launum, er herinn bauð. — Hv. þm. Str. ætlast til þess, að bændur njóti verðlagshækkunar, en verkamenn ekki sambærilegrar launahækkunar. Það er ekki hægt fyrir bændur að neita þeim um hækkun. Ómögulegt var að gera það, meðan hið erlenda herlið dvaldist í landinu.
Annars stóð ég nú upp til þess að svara fyrirspurn hv. þm. Str. um það, hvar l. hafi verið sett um það atriði, er hér um ræðir, l., sem veiti slíkt vald sem hér. Ég ætla nú að ósk hans að benda honum á það. — Reyndar veit ég ekki um önnur lönd, en ég veit um þetta land. Það eru nú t. d. lög um viðskiptaráð og l. nr. 1 og 2 frá 1935, en þau l. undirskrifaði hann sem landbrh. Gáfu þau honum síðan vald til að veitast gegn bændum landsins hvað eftir annað. Sjálfur getur þessi hv. þm. svo setzt niður og „stúderað“ þessi lög.
Hann minntist og á, að húseigendur hefðu tekjur af eignum sínum. Hv. þm. Str. veit, að margir þeirra hafa engar aðrar tekjur.
Að lokum vil ég svo, varðandi Búnaðarfélag Íslands, geta þess, að ég tel mjög varhugaverða braut, að félag sem kostað er og rekið á kostnað ríkisins, skuli hafa þá starfsmenn í þjónustu sinni, sem vinna meira og minna að öðrum störfum en þeim, er þeir eru ráðnir til að sinna hjá félaginu. Þetta þarf lagfæringar með. Mér þætti bæði gaman og gott að heyra eitthvað frá hv. þm. Str. um þetta.