11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í D-deild Alþingistíðinda. (5238)

164. mál, rafveitulán fyrir Raufarhafnarhrepp

Flm. (Björn Kristjánsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þessa till., því að margar hliðstæðar till. hafa komið hér fram, þar sem og sömu ástæður eru fyrir hendi. Þetta er fátækt hreppsfélag, en nauðsyn á að koma upp rafstöð, og er því leitað til ríkissjóðs um ábyrgð til þess. Ég vísa til þeirra raka, sem hér hafa áður komið fram í líkum málum sem þessu.

Ég sætti mig við að afgreiðslu þessa máls verði frestað, þar til fjvn. hefur athugað það, og þar til séð verður, hvort raforkulagafrv. fer í gegn, en flyt þessa till. til vara. Ég óska svo, að till. verði vísað til fjvn.