27.02.1946
Sameinað þing: 29. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í D-deild Alþingistíðinda. (5249)
173. mál, rafveita Norðurlands
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu ekki nema eðlilegt, að þeir hv. Þm., sem standa að flutningi þessarar þáltill., sem munu vera allir kjördæmakjörnir þm. í Norðlendingafjórðungi, sýni áhuga sinn fyrir því, að gerðar séu ráðstafanir til þess að koma upp orkuveri til að fullnægja raforkuþörf Norðlendingafjórðungs, og er ekki nema gott um það að segja, og ég fyrir mitt leyti mun að sjálfsögðu verða því fylgjandi, að gerðar verði svo fljótt sem kostur er á þær ráðstafanir, sem þessi till. fjallar um, þó að sýnilega megi telja nokkuð vafasamt, að hægt verði að gera þær ráðstafanir, sem talað er um, á jafnskömmum tíma og þar er gert ráð fyrir. En hitt kemur mér dálítið undarlega fyrir sjónir, þegar áframhaldandi virkjun Laxár er gerð að þingmáli og ætlazt til, að gerðar séu ráðstafanir til áframhaldandi virkjunar, að þá skuli í því sambandi ekki vera minnzt neitt á þann aðila, sem nú þegar hefur látið reisa allstóra virkjun við Laxá og rekur hana, sem sé Akureyrarkaupstaður. Ég get ekki betur skilið en flm. þessarar till. ætlist til, að sú stórvirkjun, sem ráðgerð er við Laxá, verði framkvæmd af hálfu ríkisins, verði sem sagt ríkisrafveita, væntanlega samkv. þeim l., sem sennilega verða sett á þessu þingi um rafveitur ríkisins, og ég fæ sömuleiðis ekki betur séð en það sé ætlun þeirra, að sú virkjun, sem Akureyri hefur látið gera við Laxá, hljóti þá að renna inn í þessa heildarvirkjun og verða tekin af Akureyrarbæ. Ég skal náttúrlega ekki fullyrða, hvort þetta er ætlun þeirra, en mér sýnist þetta samt og ekki sízt í tilefni af þeim orðum, sem féllu frá hv. frsm. þáltill., þegar hann talaði um, sem rétt er, að allmiklir stækkunarmöguleikar væru þar, sem Laxá hefur verið virkjuð, og eins, að reisa mætti fleiri orkuver við Laxá. En einmitt með því, ef virkja á Laxá fyrir önnur héruð, þar sem virkjun Akureyrar er, þá hljóta hagsmunir Akureyrar að koma mjög til greina. Mér þykir því ástæða til þess í sambandi við þessa þáltill. að gera það atriði nokkuð að umtalsefni.
Ég vil benda á, að í þeim l., sem nú er fyrirhugað að setja um rafveitur ríkisins, er gert ráð fyrir þeim möguleika, að þeir staðir, sem nú þegar hafa reist og reka rafveitur, fái að reka þær áfram og enda að stækka þær, a. m. k. upp að vissu marki. Í sambandi við raforkulagafrv. er einnig frv. um virkjun Sogsins, sem heimilar Reykjavíkurbæ að stækka mjög mikið þá virkjun, sem bærinn á nú, þrátt fyrir þessa fyrirhuguðu rafveitu ríkisins. Mér finnst, að það hljóti að koma til með að gilda svipað gagnvart Akureyri, og þrátt fyrir það að ríkið mundi hraða að reisa virkjun við Laxá fyrir Norðurland og aðra þá staði, sem til greina gætu komið, þá ætti Akureyri að halda rétti sínum til að reka það orkuver, sem bærinn hefur nú reist og enda til stækkunar. Ég tel eðlilegt, að Akureyri fái að fullvirkja Laxá þar, sem núverandi orkuver er. Þar eru nú virkjuð um 6 þús. hestöfl, og í áætlunum um framhaldsvirkjun á þeim stað, sem eru að vísu ekki alveg samhljóða, er gert ráð fyrir. að hægt sé að virkja a. m. k. 6 þús. hestöfl í viðbót, og eftir sumum reikningum allt að 10 þús. hestöflum, en hins vegar er gert ráð fyrir. að Laxá fullvirkjuð gefi um 40 þús. hestöfl. Sá hluti, sem þarna kemur til greina, er því ekki nema kringum 1/3 af Laxá fullvirkjaðri. Og þegar tillit er tekið til þess, að væntanlega er mjög mikið vaxandi rafmagnsþörf á Akureyri vegna iðnaðar, sem þar kann að rísa upp, þá er eðlilegt, að Akureyri fái leyfi til að fullvirkja Laxá á þessum stað. vegna þess að líkur eru til, áður en mjög langur tími líður, að ef til vill verði þörf fyrir svo að segja alla þá raforku á Akureyri einni vegna mikils iðnaðar, sem þar kann að rísa upp. Ég hef því ekki viljað láta þessa þáltill. fara hér fram hjá án þess að á það sé bent, að Akureyrarkaupstaður á hér hagsmuna að gæta og ástæða til, þegar talað er um og síðan framkvæmdur sá undirbúningur, sem hér er ráðgerður, sem sé stórvirkjun við Laxá, að þá sé tillit tekið til hagsmuna Akureyrarkaupstaðar. Ég vil því leyfa mér að bera fram brtt. við þessa þáltill., þannig að á eftir orðunum „þegar næsta Alþingi kemur saman“ komi nýr stafliður, svo hljóðandi: Akureyrarkaupstað skal þó gefinn kostur á að starfrækja áfram núverandi orkustöð sína við Laxá og stækka hana svo, að áin verði fullvirkjuð á þeim stað.
Ég held, að ekki sé ástæða til að fjölyrða sérstaklega um þetta. Akureyrarkaupstaður hefur þegar gert nokkrar ráðstafanir til að undirbúa framhaldsvirkjun við Laxá, þ. e. a. s. stækkun þeirrar stöðvar, sem nú er við Laxá. Ég veit ekki nákvæmlega, hvað sá undirbúningur er langt kominn, en ég hygg, að ef að því er undinn bráður bugur, mundi Akureyrarkaupstaður geta fullnægt því ákvæði, sem er í hinum væntanlegu raforkul., að áætlunum sé skilað innan sex mánaða frá gildistöku l. Mér er nær að halda, að það takist, en fullyrði það ekki. Á þann hátt gæti Akureyri þá fullnægt ákvæðum l., sem væntanlega verða samþ. á þessu þingi. En hvað sem því líður, álít ég, að þegar Akureyri er búin að leggja þann kostnað á sig, sem hún hefur gert við að reisa stöðina, og vitað er, að rafmagnsþörf á Akureyri eykst mjög á næstu árum, þá komi ekki til mála að útiloka Akureyrarkaupstað frá að mega stækka orkuverið, svo að tryggt sé, að bærinn sjálfur hafi næga framleiðslu í eigin orkuveri.
Ég vil svo leyfa mér að leggja fram þessa brtt. og óska þess, að leitað verði afbrigða fyrir hana, svo að hún komi til afgreiðslu í sambandi við þessa þáltill.