08.03.1946
Sameinað þing: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í D-deild Alþingistíðinda. (5292)

186. mál, lyfjasala

Flm. (Garðar Þorsteinsson) :

Þessi till. fer fram á endurskoðun á löggjöf um sölu lyfja. Þetta mál er þannig til komið, að árið 1942 lagði landlæknir það til við heilbrigðismálaráðh., Jakob Möller, að skipuð yrði nefnd til að athuga lyfsölulöggjöfina. Nefndin skilaði áliti sínu í frumvarpsformi, og var það sent til heilbr.- og félmn. Nd. frá landlækni. Ekki náðist samkomulag í n., svo að frv. var aldrei flutt. Nú gerist það, að Apótekara- og Lyfjafræðingafélög Íslands töldu, að lítt gætti hagsmuna þeirra í frv. því, er samið var af mþn. Þess vegna skipuðu félög þessi n. til að semja nýtt frv., — og mun próf. Ísleifur Árnason hafa samið frv., en próf. Ólafur Lárusson samið greinargerð. Var frv. síðan sent til heilbr.- og félmn. Nd. og mælzt til, að hún flytti það. En jafnframt hefur hið eldra frv. lítið breytt verið sent heilbr.- og félmn. Ed. og farið fram á, að hún flytti það, en í hvorugri n. hefur náðst samkomulag, og koma því þessi frv. ekki inn í þingið nema frá klofnum nefndum. Heilbrigðis- og félagsmálanefndir beggja deilda hafa rætt málið og reynt að ná samkomulagi, en ekki tekizt og gera nú það að tillögu sinni, að skipuð verði 5 manna milliþingan., þannig, eins og segir í greinargerðinni: einn frá Apótekarafélagi Íslands, annar frá Lyfjafræðingafélagi Íslands, þriðji frá Læknafélagi Íslands, fjórði skipaður af hæstarétti og landlæknir sjálfkjörinn. Ætlazt er til, að n. ljúki störfum fyrir næsta þing. Með skipun þessara manna í milliþingan. telja nefndarmenn beggja deilda, að allir þeir, er hagsmuna hafa að gæta, geti komið fram með sínar tillögur.

Ég vil aðeins benda á, að löggjöfin um þessi efni er orðin gömul, þ. á m. tilskipunin um apótek frá 1672, og að öðru leyti er löggjöfin um eftirlit með apótekum víða í lögum. Er því full ástæða til að semja um þetta heildarlöggjöf. — Vil ég fara fram á það, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. allshn. Sþ.