27.04.1946
Sameinað þing: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í D-deild Alþingistíðinda. (5341)
213. mál, landhelgisgæzla og björgunarstörf
Frsm. (Guðmundur f. Guðmundsson) :
Herra forseti. Fjvn. hefur borizt till. til þál. frá hæstv. dómsmrh. um landhelgisgæzlu og björgunarstarfsemi ásamt tilmælum um, að n. bæri þessa þáltill. fram. Hefur n. orðið við því að flytja þessa till. til þál. á þskj. 656, sem hér liggur fyrir. Allir óska þó nm. að taka það fram, að þeir vilji hafa óbundnar hendur um flutning brtt. og afstöðu til þáltill. í heild, eftir því hvernig fer með þeirra brtt.
Frá hæstv. ríkisstj. hefur fylgt þessari þáltill. mjög ýtarleg grg. ásamt fylgiskjölum, og ætti því ekki að þurfa að ræða hana ýtarlega, ef menn hafa kynnt sér þessi skjöl.
Mér þykir þó rétt að gera með nokkrum orðum grein fyrir efni þessarar þáltill. sjálfrar og því tilefni, sem liggur til grundvallar þess, að hún er borin hér fram.
Eins og sjá má, er þar lagt til, að hæstv. ríkisstj. verði heimilað að selja varðskipin Njörð, Baldur og Braga eða skipta á þeim skipum og öðrum. Verður þó að láta fara fram athugun á því, áður en þau skipti fara fram, hvaða skip henti bezt landhelgisgæzlu og björgunarstarfi hér við land. Jafnframt er gert ráð fyrir því í þáltill., að ríkisstj. verði heimilað að fullnægja samningi, sem hún hefur gert við slysavarnasveit Vestfjarða og dagsett er 1/8 1945. En þessi samningur er þess efnis, að þessi slysavarnasveit leggur fram allt að 200 þús. kr. til byggingar eða kaupa á skipi, sem geti haft með höndum gæzlu og björgunarstarf á Vestfjörðum. Enn fremur er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. sé heimilt að gera sams konar samninga við aðrar björgunarsveitir annars staðar á landinu.
Enn fremur er í þáltill. lagt til, að ríkisstj. sé heimilað að verja úr ríkissjóði allt að 2 millj. kr. í þessu skyni. Og enn fremur, að ríkisstj. sé heimilt að taka þessa fjárhæð að láni, ef með þarf til þess að fullnægja ákvæðum þáltill.
Ég vil út af þessu síðasta atriði taka það fram, að ég verð að bera hér fram brtt., þar sem lagt er til, að lánsheimildin sé numin burt úr þáltill., vegna þess að það mun ekki samrýmast fyrirmælum stjskr., að slík heimild sé eingöngu tekin upp í þáltill. Til þess mun þurfa lagafyrirmæli.
Eins og hv. dm. mun kunnugt, þá hefur nú á síðustu tímum í yfirstandandi styrjöld orðið allmikil breyting á landhelgisgæzlu og björgunarstarfi hér við land. Fyrir stríð var landhelgisgæzlan með þeim hætti, að við hana störfuðu ákveðin gæzluskip allt árið, sem höfðu ákveðið svæði. Þegar styrjöldin skall á, hefur orðið að gera á þessu nokkrar breyt., sem urðu æ róttækari eftir því sem leið á stríðið. Og var svo komið þegar styrjöldin hafði staðið nokkurn tíma, að helztu landhelgisgæzluskipin voru tekin til annarra starfa en landhelgisgæzlu. Ægir, sem áður hafði verið við landhelgisgæzlu, var mest notaður til fólksflutninga og olíuflutninga á þessum tíma. Þór var leigður til fiskflutninga. Og voru hvorug þessi skip notuð til landhelgisgæzlu nema að litlu leyti, kom hún því á Óðin og Sæbjörgu og aðra báta, sem voru við landhelgisgæzlu hingað og þangað við landið.
Þó að segja megi, að notast mætti við þessi skip og þessa skipan á málunum meðan á stríðinu stóð og lítið var hér um erlend skip, þá er víst, að þegar stríðinu er lokið, má telja víst, að fjöldi erlendra skipa leiti hingað til veiða. Getur því sú skipan, sem á þessum málum hefur verið hingað til, ekki gengið lengur.
Ríkisstj. er, eins og tekið er fram í grg., ljóst, að brýna nauðsyn ber til þess, að hér verði gerðar nægar varúðarráðstafanir og að eitthvað verði gert til þess að efla landhelgisgæzluna og útvega fleiri skip en hingað til hefur verið gert. Í þessu skyni samdi ríkisstj. á sínum tíma við Slysavarnafélag Íslands um það, að Sæbjörg yrði stækkuð og sett í hana stærri vél. Bar ríkisstj. að verulegu leyti kostnaðinn af þeirri breyt., en þó þannig, að henni var samtímis leigð Sæbjörg til 15 ára, og skyldi leiga og kostnaður, sem ríkið yrði að leggja þar út, koma alls staðar hvað á móti öðru. Samningur um þetta hefur verið staðfestur af Alþ. með þáltill. Á sama hátt samdi ríkisstj. við slysavarnasveit Vestfjarða á síðasta ári um það að leggja fram 200 þús. kr. til byggingar eða kaupa á skipi, sem hefði með höndum gæzlu- og björgunarstarf fyrir Vestfirði. Í þessari þáltill. er leitað staðfestingar á þessum samningum. Það er litið svo á af hæstv. ríkisstj., að hér sé farið inn á mjög heppilega leið, þegar samið er við slysavarnafélögin um þessi mál. Og þess vegna felast einnig í þessari þáltill., sem hér liggur fyrir, tilmæli um það, að ríkisstj. verði heimilað að leita eftir sams konar samningum við aðrar slysadeildir. Þá hefur ríkisstj. gert aðrar tilraunir til þess að efla landhelgisgæzluna. Sú tilraun var gerð, þegar forstjóra Skipaútgerðar ríkisins var á síðasta ári falið að leita eftir hentugum skipum einkanlega til þess að annast landhelgisgæzlu og björgunarstarf. Að hans ráði voru keypt 3 varðskip, eins og öllum hv. þm. er kunnugt, eða þrír bátar í Englandi, sem fyrir nokkru eru komnir hingað til landsins. Og eins og hv. þm. er einnig kunnugt, þá kom upp orðrómur um það, þegar þessir bátar voru komnir hingað, að þeir mundu ekki vera sem heppilegastir og í raun og veru alveg ónothæfir til landhelgisgæzlu og björgunarstarfsemi. Þegar hæstv. ríkisstj. festi kaup á þessum bátum, byggði hún aðallega á þeim till. og þeim meðmælum, sem fyrir lágu frá forstjóra Skipaútgerðar ríkisins. Og hún taldi sig hafa fulla ástæðu til þess að treysta því, að hann hefði athugað skipin og gengið úr skugga um, að þau væru til starfsins hentug, og að treysta mætti því, að hann hefði fulla þekkingu á. þessum hlutum. Ríkisstj. var því í þeirri góðu trú og fullu trausti þess, að hér væri verið að gera mjög heppilegar ráðstafanir, þegar skipin voru keypt.
Eftir því sem síðar hefur komið fram varðandi þessi skip, hefur hins vegar komið í ljós, að ekki virðist viðlit að nota þau til þeirra hluta, sem þau voru ætluð, og er álitsgerð ásamt umsögn skipaskoðunarinnar prentuð hér sem fylgiskjal með þáltill., og sé ég ekki ástæðu til þess að ræða það sérstaklega. En á grundvelli þessarar álitsgerðar leitar nú ríkisstj. eftir heimild frá Alþ. til þess að mega selja þessi skip, og þess er að vænta, að svo verði gert, eins og nú er komið í málinu, því að það er með öllu óhjákvæmilegt, að gerðar verði þegar í stað ýtarlegar ráðstafanir til þess að efla þann flota, sem við höfum á að skipa til landhelgisgæzlu og björgunarstarfa hér við land. Því að þau skip, sem fyrir eru nú, eru með öllu ófær til að leysa þetta starf af hendi svo að fullu gagni komi. Um þetta held ég, að allir geti orðið sammála. Það hafa að vísu komið fram raddir um það, að fresta mætti að gera nokkrar ráðstafanir í þessu sambandi, þar til fyrir lægi fullkomin rannsókn á því, hvernig þessum málum yrði bezt skipað. Og skyldi svo niðurstaðan af þeirri rannsókn lögð fyrir Alþ., og það tæki svo sínar ákvarðanir í þessu efni. Ég fyrir mitt leyti vil ekki fallast á það, að sú leið verði farin, ekki vegna þess, að ég telji ekki fulla þörf á, að þessi rannsókn fari fram, heldur vegna þess, að ég tel málinu vel borgið, ef niðurstaða þessarar rannsóknar er lögð fyrir hæstv. ríkisstj., og síðan geri ríkisstj., að fenginni þessari rannsókn, ráðstafanir til þess að leysa málið. Og ég tel, að það gæti orðið of mikill dráttur á lausn þessa máls, ef fyrst á að ljúka rannsókn og síðan á að tefja það með afgreiðslu hér á Alþ. Þess vegna er ég fyrir mitt leyti ekki vel fylgjandi þeim hv. meðnm. mínum, sem hafa viljað gera þessa breyt. á þáltill, hæstv. ríkisstj.
Ég sé þá ekki ástæðu til þess að fylgja þessari þáltill. úr hlaði með fleiri orðum. En ég vildi leyfa mér að bera fram brtt. um, að orðin „eða til að taka fé að láni“ falli burt úr síðari mgr. tillgr. Væri máske réttast, að síðari mgr. yrði felld niður, vegna þess að þeim hlutum verður ekki skipað með þáltill.