14.12.1945
Neðri deild: 53. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (536)
1. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Ingólfur Jónsson) :
Herra forseti. Frv. þetta er flutt til staðfestingar á brbl. um heimild fyrir ríkisstj. til að breyta tímaákvörðunum og frestum þeim, sem um ræðir í IV. kafla l. nr. 6 9. jan. 1935, um tekjuskatt og etgnarskatt, ef þörf krefur.
Þarf ekki frekari skýringa við um þetta frv. en getið er á þskj. í aths. um frv., sem því fylgja. — Fjhn. hefur athugað þetta frv. og mælir öll með því, að það verði samþykkt.