05.03.1946
Neðri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í D-deild Alþingistíðinda. (5399)

19. mál, verðlag landbúnaðarvara

Skúli Guðmundsson:

Mér finnst, að ekki ætti að þurfa að tefjast lengi að framkvæma þessi lög, og ætti að vera hægt að ljúka þessu máli fljótlega. Mér finnst af því, sem hæstv. ráðh. las upp, að allt þetta sé gert of flókið og gæti verið miklu einfaldara. Það er tvennt, sem þarf að skýrast betur: fyrst, útreikningar hagstofunnar um áhrif kauphækkunar á vísitölu, og svo þarf að liggja fyrir skýrsla um vinnslu og sölukostnað.

Ég sé hér í greinargerð fyrir þessari fyrirspurn, að vísitala landbúnaðarafurða hefur hækkað um 9,7% á einu ári. Vegna þess að sundurliðun vantar, veit ég ekki, hve mikið af þessari hækkun stafar af kaupgjaldshækkun. Segjum, að 7–8% stöfuðu af kaupgjaldshækkun, en til viðbótar kemur svo vinnsla og sölukostnaður. Þegar þetta er fengið, þá ætti að vera ofur einfalt að framkvæma lagaákvæðið.

Ég vona, að frá þessu verði gengið sem fyrst, svo að framleiðendur fái það, sem þeim ber.