08.02.1946
Neðri deild: 65. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2144 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Atvmrh. (Áki Jakobsson) :

Í hléinu hefur ríkisstj. gert þær ráðstafanir, sem hún taldi nauðsynlegar til tryggingar sjávarútveginum í sambandi við þá óvissu, sem nú ríkir um markaði erlendis. Þessar ráðstafanir hafa einkum miðazt við það, að gert er ráð fyrir því, að sú óvissa, sem nú ríkir um enska markaðinn, geri það nauðsynlegt, að eitthvað af fiskinum verði saltað. Hefur verið talað um það, að útvegsmönnum yrði tryggt ákveðið verð fyrir 5000 tonn af saltfiski.

Enn fremur er ágreiningur uppi milli fiskiskipaeigenda og þeirra manna, sem á skipunum vinna, um áhættuþóknunina o. fl. Sá ágreiningur er ekki enn leystur og ekki vitað, hvernig það mál fer. En þetta getur haft áhrif á flutninga, sérstaklega hinna minni skipa. Vegna óvissunnar um sölu á hraðfrysta fiskinum hefur ríkisstj. hafið viðræður við hraðfrystihúsaeigendur um það, að þeir sjái um að setja hús sín í gang og tryggja þá fyrir skakkaföllum. Enn er ekki vitað, hvernig til tekst með sölu á þessum fiski. En þetta hefur orðið til þess, að hraðfrystihúsin öll hafa farið af stað og tekið á móti mestu af þeim fiski, sem fiskaður hefur verið. Fiskur hefur heldur verið tregur og gæftir ekki góðar. Mjög bráðlega má vænta frekari upplýsinga í sambandi við þessi mál og þau lögð fyrir þingið, þar sem ríkisstj. mun æskja heimildar til þessara ráðstafana af hálfu þingsins.