13.11.1945
Efri deild: 29. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (5434)

45. mál, flutningur hengibrúar

Jónas Jónsson:

Eftir að ég hafði fengið að vita hjá vegamálastjóra, að Ölfusárbrúin væri ekki nothæf á Hvítá, þar sem hún er hvorki nógu löng né breið, skrifaði ég samgmrh. og spurðist fyrir, hvort hún væri ekki nothæf á Skjálfandafljót í Bárðardal. Sveit þessi er um 40 km á lengd, en fljótið klýfur mjög bæði samgöngur og hvers konar viðskipti, en það er eins og allir skilja mjög bagalegt. Þó að ráðh. sé vondaufur um, að nota megi brúna þar, er ég ekki vonlaus um, að það mætti takast. Stórár, sem kljúfa héruð, eins og Skjálfandafljót í Bárðardal, Jökulsá í Lóni o, fl., og gera nútímalíf svo torvelt, er nauðsynlegt að brúa. Ég vona, að ráðherrann noti Ölfusárbrúna á góðan stað og þá einkum í eitthvert þessara vanræktu héraða. Býst ég við að hreyfa þessu máli síðar, að hin klofnu héruð fái brýr.