19.03.1946
Sameinað þing: 34. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (553)

157. mál, fjáraukalög 1942

Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Fjvn. hefur farið í gegnum frv. og borið það saman við ríkisreikn. og einnig við aths. og grg. yfirskoðunarmanna þetta ár. Nefndin hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að frv. sé rétt, nema prentvilla í 6. gr. tölul. 8 a I, en hún sá ekki ástæðu að bera fram brtt. vegna þessarar prentvillu, heldur gekk hún út frá því, að prentvillan yrði leiðrétt án samþykktar Alþingis. Nefndin leggur því til, að frv. verði samþ.